Skattatilboð til leigjenda eins og hver annar brandari Höskuldur Kári Schram skrifar 13. desember 2013 19:45
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, efast um að fólk á leigumarkaði hafi fjárhagslegt svigrúm til að nýta sér boðaðan skattaafslátt ríkisstjórnarinnar í tengslum við skuldaaðgerðirnar. Hann segir að tilboðið sé einungis sett fram til að blása aðgerðinar upp. Í tillögum ríkisstjórnarinnar um skuldaaðgerðir er lagt til að fólk á leigumarkaði geti nýtt sér skattleysi séreignasparnaðar til að greiða inn á sérstakan húsnæðissparnaðarreikning. Þannig geti leigjendur byggt sér upp höfuðstól til fasteignakaupa. Steingrímur segist fagna því að tillögurnar séu komnar fram en telur að mörgum spurningum sé enn ósvarað. Þá segir hann aðgerðina fyrst og fremst gagnast tekjuhærri hópum. Steingrímur er gestur í þættinum Pólitíkin á Vísi. „Veikleiki þessar tillagna er hinn félagslegi þáttur. Þetta mun fyrst og fremst gagnast tekjuhærri hópunum. Svo er það eins og hver annar brandari að tala um að leigjendum geti staðið til boða að leggja einhvern húsnæðissparnað inn skattfrjálst með þessum hætti. Ætli það verði nú margir sem búa í félagslegu leiguhúsnæði sem geta tekið 4 prósent af launum sínum til hliðar í svona húsnæðissparnað? Þetta er bara gert til að blása aðgerðina upp og telja okkur trú um að þetta nái til 80% heimila í landinu. Að sjálfsögðu verður það ekki þannig. Þetta er miklu þrengri hópur sem fær þarna úrlausn,“ segir Steingrímur.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira