Óupplýst lögreglumál - Morð og andlát ungs manns 14. desember 2013 18:59
Eitt þekktasta óupplýsta morðmál á Íslandi, morðið á Gunnari Tryggvasyni leigubílstjóra í janúar 1968, verður til umfjöllunar í næsta þætti af Óupplýstum lögreglumálum næstkomandi sunnudagskvöld. Sviplegt fráfall tvítugs manns, Benedikts Jónssonar, verður einnig til umfjöllunar í þættinum en Benedikt lést af völdum áverka sem hann hlaut eftir slagsmál fyrir utan skemmtistaðinn Þórscafé í nóvember 1974. Gunnar Tryggvason leigubílstjóri fannst látinn í leigubíl sínum, 18. janúar 1968 við Laugalæk í Reykjavík. Gunnar hafði verið skotinn í hnakkann en lögreglu gekk erfiðlega að finna ummerki eða vísbendingar sem nýttust við rannsókn málsins. Sumir hafa líkt morðinu á Gunnari við aftöku, en engin ummerki voru um slagsmál eða átök í leigubílnum. Það var svo ekki fyrr en rúmu ári síðar að byssa fannst og eftir rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, og síðar Scotland Yard í Bretlandi, var hægt að staðfesta að umrædd byssa væri morðvopnið. Einn maður sat lengi í gæsluvarðhaldi grunaður um morðið en hann var síðar sýknaður.Ungur maður lést eftir slagsmál við skemmtistað Benedikt Jónsson frá Stóru-Ávík á Ströndum fannst meðvitundarlaus fyrir utan skemmtistaðinn Þórscafé 9. nóvember 1974. Lögregla flutti hann á slysadeild en hann lést áður en þangað var komið. Benedikt hafði verið að skemmta sér á Þórscafé ásamt félaga sínum og lent í slagsmálum fyrr um kvöldið. Það voru þó engir áverkar voru á líkama hans og aldrei var upplýst um dánarorsök Benedikts. Fjórði þáttur Óupplýstra lögreglumála verður sýndur næstkomandi sunnudag kl. 20:30 á Stöð 2. Hægt er að horfa á fyrri þætti á VOD / Stöð 2 Frelsi, í gegnum OZ í iPad og iPhone og Netfrelsi á Stod2.is.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira