Speglanir jukust um 167 prósent á einkastofum 15. desember 2013 14:00 MYND/GVA
Í skýrslu sem Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Una Jónsdóttir hagfræðingur gerðu fyrir nokkru kemur fram að eftir að læknum á Landspítalanum var heimilt að sinna læknisverkum utan sjúkrahússins breyttist margt. Í skýrslunni kemur fram að speglanir drógust saman um þriðjung á Landspítalanum en jukust að sama skapi um 167 prósent á einkastofum á næsta árinu. Í desember 2002 ákvað stjórn sjúkrahússins að afnema sérstakar greiðslur til starfsmanna vegna ákveðinna verka og launin vegna þeirra verka urðu hluti umsaminna fastra launa. Semsagt var hætt að græða fyrir sérstök verk. Verkin semsagt fluttust af Landspítalanum og á stofur utan hans og áfram var því hægt að rukka sérstaklega fyrir þessi verk. „Hér á landi eru til lækningatæki vel yfir meðaltali OECD-ríkjanna sem við berum okkar saman við,“ segir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, hagfræðingur. Hún bendir á að þegar tækjabúnaður er skoðaður og borinn saman er algengur mælikvarði í löndum að skoða fjölda segulmyndatækja og sneiðmyndatækja. „Ísland er vel yfir meðallagi hvað varðar þessi tæki, það er að segja hversu mörg tækin eru á 100 þúsund íbúa. VAndi okkar hér er hins vegar sá að þessi tæki eru mun meira fyrir utan sjúkrahúsin hérlendis en tíðkast erlendis. Þegar heyrast svo kveinstafir frá Landspítalanum um að þar skorti tækjabúnað þá er það rétt, að því leyti, að við erum undir meðaltalinu, þegar kemur að fjölda tækjanna inn á sjúkrahúsunum.“Þetta kom fram í þætti Sigurjóns M. Egilssonar, Á Sprengisandi, í morgun. Tinna Laufey segir því að tækin séu til á landinu en flest á einkasofum hjá sérfræðingum. Hún bendir þó á að auðvitað þarf fleira af tækjum í strjálbýlu landi og það eigi við um nokkur önnur lönd og svlði líka og nefnir Norður-Finnland og Noreg í því sambandi. „Við erum því ekki ein á báti hvað þetta varðar og svo má ekki gleyma því að hlutir eins og það að við erum ung þjóð vinnur með okkur,“ segir Tinna Laufey.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira