Jólakötturinn er tískulögga Hrund Þórsdóttir skrifar 15. desember 2013 20:00
Nú fyrir helgi var tilkynnt á Rás 2 hvaða verslanir hefðu orðið hlutskarpastar í keppni um fegursta jólagluggann í miðborginni. Jón Gnarr borgarstjóri var viðstaddur og sagði metnaðarfulla verslunareigendur eiga þátt í að Reykjavík væri ár eftir ár valin ein eftirsóttasta jólaborg heims. Í þriðja sæti í keppninni um fegursta jólagluggann, varð Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Verslunin Hrím hönnunarhús var í öðru sæti og verslunin Geysir á Skólavörðustíg sigraði keppnina. Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir hannaði skreytinguna og Sonja Margrét Ólafsdóttir, verslunarstjóri í Geysi, segir jólaköttinn þemað í ár. „Hann er settur fram hérna í glugganum sem tískulögga sem fylgist með þér þegar þú labbar framhjá, hvort þú fáir ekki örugglega ný föt eða eitthvað nýtt fyrir jólin og farir ekki í jólaköttinn,“ segir Sonja. Verðlaunin eru óhefðbundin því borgarstjórinn mun afgreiða í versluninni í klukkustund og þeir sem vilja njóta þjónustu hans geta nálgast upplýsingar á facebooksíðu Geysis. Í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt má sjá myndir af hinum glæsilegu gluggum auk þess sem rætt er við vegfarendur um álit þeirra á vali dómnefndarinnar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira