Milljarði undir því sem áætlað var í fjármagni til þróunarsamvinnu Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 16. desember 2013 16:16 „
Í stað þess að auka aðstoðina um 500 milljónir eða rúmlega það eins og átti að gera samkvæmt þingsályktun Alþingis er verið að áætla lækka aðstoðina um rúmlega 400 milljónir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður. Þar vísar hann til þess að undir lok síðasta kjörtímabils hafi verið ákveðið að bæta verulega í fjármagn til þróunarsamvinnu á næstu árum til þess að ná markmiði Sameinuðu þjóðanna um að þróuð ríkið verji 0,7 prósentum af landsframleiðslu sinni til þróunaraðstoðar. Eins og fram kom á Vísi hafa fá eða engin ríki náð því markmiði en Ísland hefur verið í lægri kantinum. Öll greidd atkvæði á þingi, að undanskildu einu, voru með tillögunni um að Ísland myndi bæta í aðstoð við þróunarsamvinnu. Steingrímur segir að til þess að ná markmiði samkvæmt þingsályktuninni hefði þurft að bæta í en ekki draga úr fjárframlaginu. „Í raun má segja að með því að fara ekki eftir þingsályktuninni verðum við milljarði undir því sem átti að verða árið 2014.“Hækkun veiðigjalda ekki bara áform heldur framkvæmd Í nefndaráliti um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2014 segir að lagt sé til að dregið verði úr styrkjum til þróunarsamvinnu. Í fjárlögum fyrir árið 2013 hafi framlög til málaflokksins verið aukin, meðal annars með hliðsjón af verulegri hækkun á veiðigjaldi á sjávarútveg sem þá var áformuð og annarri nýrri tekjuöflun sem átti að útfæra síðar. Þessar tekjuöflunaráform hafi ekki gengið eftir. Steingrímur sagði í ræðu á Alþingi nú fyrir helgi að það væri afar óheppilegt að þetta kæmi fram í álitnu þar sem það hafi verið núverandi ríkisstjórn sem hætt hafi við hækkun á veiðigjaldi. Hann minnir á að hækkunin á veiðigjöldum hafi ekki bara verið áformuð heldur hafi hún verið framkvæmd, veiðigjöld hafi verið hækkuð en þau hafi svo verið lækkuð aftur síðasta vor. Í samtali við Vísi segir Steingrímur að það jafnframt vitleysa að hækkunin á aðstoð vegna þróunarsamvinnu hafi verið tengd fjárfestingaráætluninni, enda sjáist það hvergi í þeim plöggum. Hún hafi verið sjálfstæð og ekki tengd fjárfestingaáætluninni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira