Sport

Jón Ingi og Rannveig best í krullu á árinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ragnnveig og Jón Ingi með viðurkenningu sína norðan heiða.
Ragnnveig og Jón Ingi með viðurkenningu sína norðan heiða. Mynd/Krullunefnd ÍSÍ
Jón Ingi Sigurðsson og Rannveig Jóhannsdóttir eru krullumaður og krullukona ársins 2013. Krullunefnd ÍSÍ velur karl og konu úr röðum krullufólks að undangenginni kosningu innan Krulludeildar Skautafélags Akureyrar sem er eina félagið þar sem krulla er á dagskrá sem keppnisgrein.

Jón Ingi Sigurðsson, fyrirliði liðs Mammúta frá Skautafélagi Akureyrar, varð efstur í kjöri krullufólks og er krullumaður ársins 2013.

Jón Ingi hefur leitt lið Mammúta frá stofnun liðsins haustið 2005, í gegnum breytingar, til fjögurra Íslandsmeistaratitla og í keppni á tveimur Evrópumótum. Frá því að Jón Ingi leiddi lið Mammúta fyrst til Íslandsmeistaratitils 2008 hefur liðið alltaf orðið í einu af þremur efstu sætum Íslandsmótsins.

Liðið varð Íslandsmeistari 2008, 2009, 2010 og 2012, hlaut silfur 2011 og brons 2013. Liðið tapaði síðast leik í undanúrslitum Íslandsmótsins í apríl síðastliðnum, þannig að Íslandsmeistaratitilinn rann þeim úr greipum þetta árið, en síðan þá hefur liðið farið ósigrað í gegnum tvö mót og er nú Akureyrarmeistari í krullu auk þess að sigra í Gimli Cup krullumótinu nú í nóvember. Þetta er í þriðja sinn sem Jón Ingi hlýtur þann heiður að vera valinn krullumaður ársins, en áður var hann valinn 2005 og 2008.

Rannveig Jóhannsdóttir hefur á örfáum árum frá því að hún hóf að spila krullu náð mjög góðum tökum á íþróttinni og er nú í fremstu röð krullufólks, tæknilega nákvæm og traustur leikmaður sem sjaldan gerir mistök.

Hún hefur verið burðarásinn í þeim liðum sem hún hefur leikið með undanfarin misseri og leiðir nú efnilegt lið Freyja, sem unnið hefur til silfur- og bronsverðlauna á þeim mótum sem lokið er það sem af er vetri. Rannveig er krullukona ársins 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×