Einar Kárason ritskoðaður af Actavis Jakob Bjarnar skrifar 17. desember 2013 10:55 Auglýsingastofumenn máttu súpa seyðið af því að hafa fengið rithöfundinn til að semja fyrir sig auglýsingatexta.
Grein sem Einar Kárason skrifar í nýjasta TMM, „Reiði Akkilesar“, er kostuleg lýsing hans á samskiptum við auglýsingastofu Actavis – en auglýsingatexti sem frá honum kom þótti persónuleg árás á Björgólf Thor Björgólfsson. Actavis-menn voru æfir og höfðu í hótunum að slíta öllu samstarfi við auglýsingastofuna. „Ég mun missa vinnuna ef þú breytir þessu ekki,“ sagði tengiliður Einars við hann; „you have to save my ass!“ Einar nefnir ekki auglýsingastofuna í greininni en Auglýsingastofa Actavis á Íslandi er Hvíta húsið. Einar greinir frá því að þeir þar hafi fengið þá fremur ófrumlegu hugmynd að fá frá honum texta sem byggði á hugmyndinni „Hvar væru þau nú“; sem sagt ef persónur Íslendingasagna væru uppi á vorum tímum, hvar væru þær staddar. Þetta var í tengslum við Bókamessuna í Frankfurt en þar var Actavis helsti styrktaraðili þó fyrirtækið væri komið í eigu útlendinga þá væru þeir stoltir af sínum íslenska uppruna og vildu gjarnan leggja hönd á plóg. Björgólfur Thor væri í stjórn en ekki í meirihluta. Einar var fenginn til að rita stutta kafla sem byggðu á þessari hugmynd og tók það að sér meðal annars vegna þess að auglýsingatextar „eru hærra metnir til fjár en flest sem skrifað er annað; fjórtán línur í auglýsingu eru ólíkt dýrari en sonnetta.“ Ramminn var klár og Einar fór í verkið. Hann komst að því er því vatt fram, í gegnum samskipti við tengilið sinn á auglýsingastofunni, að Halldór Baldursson og Óttar Guðmundsson kæmu einnig að málum en til stóð að gera auglýsingaskilti, borða og gera jafnframt auglýsingar sem myndu byggja á afurðinni. Ekkert varð þó af því þegar til kom vegna þess að texti Einars um kappann Gunnar á Hlíðarenda þótti minna um of á Björgólf Thor sem var svona frá Einars hendi:„Það var á allra vitorði að hann væri orðinn sterkefnaður og þótti mikilvægt að hann fjárfesti hér heima, og þegar ríkisbankarnir voru einkavæddir fékk hann að kaupa einn bankann (þótt seinna sé deilt um hvort hann hafi þurft að borga krónu) og í framhaldinu gerðist hann umsvifamesti viðskiptajöfur landsins; eignaðist fjöldann allan af stórum og frægum fyrirtækjum bæði heima og erlendis. Hann barst mikið á og var nokkrum sinnum útnefndur „eftirsóttasti piparsveinn landsins“ – það var svo Hallgerður sem klófesti hann með tilheyrandi „brúðkaupi aldarinnar“ og hnattferð í endalausum lúxus. Þegar á leið fóru menn að efast um að veldi hans stæði nógu styrkum fótum, og með efnahagshruninu í október 2008 fór eins og allir vita. Veldið hrundi með miklu braki og óhemju tapi fyrir íslenskt samfélag og almenning og reyndar banka og fyrirtæki um allan heim; nú er fullyrt að allt hafi hann gert með svikum og blekkingum. Hann missti allt, en hangir þó enn á sumarhúsi sínu í Fljótshlíðinni; er sagður dveljast þar einn og talinn þurfa að óttast um sig vegna reiði sem hann hefur kallað yfir sig.“ Þetta þótti Actavismönnum fyrir neðan allar hellur, auglýsingastofan fór af límingunum og varð minna úr verkefninu öllu en til stóð þó Einar reyndi að breyta textanum, en hann var að vonum ekki ánægður með það að vera ritskoðaður með þessum hætti. En, lét sér þó í léttu rúmi liggja því hann fékk greitt eins og um var samið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira