Glænýir bóksölulistar: Kóngurinn stuggar við Naglbítnum Jakob Bjarnar skrifar 17. desember 2013 11:48 Arnaldur er mættur á toppinn en Villi má vel við una á 2. sæti.
Nú, þegar jólabókaflóðið er að ná hámarki er Arnaldur Indriðason er aftur mættur í efsta sæti Bóksölulistans. Gamalkunnar slóðir. Hann hefur ýtt svarta hesti þessara bókajóla, Vilhelm Anton Jónssyni, alías Villa naglbíti, með Vísindabók sína af toppnum. Vili má þó verulega vel við una í öðru sæti yfir söluhæstu bækurnar; hefur troðið sér milli Arnaldar og glæpasagnadrottningarinnar Yrsu Sigurðardóttur og líkar vel að vera áleggið í þeirri samloku. Þá virðist sem tilnefningar til hinna íslensku bókmenntaverðlaunanna - Gullmiðinn - hafi haft nokkur áhrif á söluna. Góður árangur Arnaldar leiðir hugann að stöðu hans sem rithöfundur og þá kannski ekki síður stöðu íslensku glæpasögunnar. Frá því að Mýrin kom út árið 2000, hefur hann setið á toppi Bóksölulistans fyrir hver jól og átt eina mest seldu íslensku skáldsöguna ár eftir ár. Skuggasund, hans 18. bók, er þar engin undantekning, og hefur hún fengið mjög góða dóma. Arnaldur er því líklegur til að gera tilkall til mest seldu íslensku skáldsögu ársins enn á ný. Sé litið til Arnaldar og allra hans velgengni, ekki síst á erlendri grund, má velta fyrir sér hvort fremd hans á heimaslóðum sé í takti við velgengnina? Svo virðist sem gjá hafi myndast milli lesenda og þeirra sem um véla: Arnaldur hefur aldrei hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin en var þó tilnefndur til þeirra árið 2004 fyrir Kleifarvatn. Hann hefur aldrei hlotið Bóksalaverðlaunin. Hann hefur aldrei verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hefur aldrei hlotið Menningarverðlaun DV en var tilnefndur árið 2012 fyrir Reykjavíkurnætur. Hann hefur aldrei fengið viðurkenningu frá Rithöfundasjóði RUV. Hann hefur aldrei fengið verðlaun eða viðurkenningu Jónasar Hallgrímssonar... Einu íslensku verðlaunin sem hann virðist hafa fengið er Blóðdropinn, Íslensku glæpasagnaverðlaunin árið 2008 fyrir Harðskafa en hann hefur alltaf verið í hópi tilnefndra til þeirra verðlauna. Hann hefur hins vegar tvisvar sinnum hlotið Glerlykilinn, Norrænu glæpasagnaverðlaunin. Fyrst fyrir Mýrina árið 2002 og svo aftur ári síðar fyrir Grafarþögn. Hann hlaut Gullna rýtinginn, verðlaun samtaka breskra glæpasagnahöfunda árið 2005 fyrir Grafarþögn og núna nýlega hlaut hann hin virtu spænsku RBA verðlaun fyrir sína nýjustu bók, Skuggasund. Arnaldur virðist þannig virtari meðal erlendra sérfræðinga og upphefðinnar að utan nýtur hann ekki í ranni þeirra sem tilefna til verðlauna þó vissulega njóti hann verulegra vinsælda meðal bókakaupenda. Einnig er það óumdeilt að vinsældir hans erlendis hafa liðkað fyrir sölu á verkum margra annarra íslenskra höfunda til þýðingar og útgáfu á erlendri grund. En, að hinum vikulegu listum bókaútgefenda. Söluhæstu titlar Bóksölulistans1. Skuggasund - Arnaldur Indriðason 2. Vísindabók Villa - Vilhelm Anton Jónsson 3. Lygi - Yrsa Sigurðardóttir 4. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir 5. Guðni : léttur í lund - Guðni Ágústsson 6. Rangstæður í Reykjavík - Gunnar Helgason 7. Útkall : lífróður - Óttar Sveinsson 8. Fiskarnir hafa enga fætur - Jón Kalman Stefánsson 9. Hemmi Gunn : sonur þjóðar - Orri Páll Ormarsson 10. Ólæsinginn sem kunni að reikna-innb. Jonas JonassonÆvisögur1. Hemmi Gunn : sonur þjóðar - Orri Páll Ormarsson 2. Sigrún og Friðgeir - Sigrún Pálsdóttir 3. Gullin ský - Óskar Þór Halldórsson 4. Manga með svartan vanga - Ómar Ragnarsson 5. Við Jóhanna - Jónína Leósdóttir 6. Ár drekans : dagbók utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson 7. Steingrímur J. - Steingrímur J. Sigfússon / Björn Þ. Sigbjörnss. 8. Alla mína stelpuspilatíð - Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir 9. Snorri á Fossum - Bragi Þórðarson 10. Það skelfur - Ragnar StefánssonÍslensk skáldverk 1. Skuggasund - Arnaldur Indriðason 2. Lygi - Yrsa Sigurðardóttir 3. Fiskarnir hafa enga fætur - Jón Kalman Stefánsson 4. Grimmd - Stefán Máni 5. Sæmd - Guðmundur Andri Thorsson 6. Dísusaga - Vigdís Grímsdóttir 7. Mánasteinn - Sjón 8. Glæpurinn ástarsaga - Árni Þórarinsson 9. Stúlka með maga - Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir 10. Andköf - Ragnar JónassonÞýdd skáldverk 1. Ólæsinginn sem kunni að reikna-innb. - Jonas Jonasson 2. Og fjöllin endurómuðu - Khaled Hosseini 3. Ólæsinginn sem kunni að reikna-kilja - Jonas Jonasson 4. Týndu árin - kilja - Mary Higgins Clark 5. Gröfin á fjallinu - Hjorth Rosenfeldt 6. Týndu árin - kilja - Mary Higgins Clark 7. Maður sem heitir Ove-innb. - Fredrik Beckman 8. Maður sem heitir Ove-kilja - Fredrik Beckman 9. Konungar kljást - George R.R. Martin 10. Veiðihundarnir - Jørn Lier HorstÍslenskar barnabækur1. Vísindabók Villa - Vilhelm Anton Jónsson 2. Rangstæður í Reykjavík - Gunnar Helgason 3. Tímakistan - Andri Snær Magnason 4. Strákar - Bjarni Fritzson / Kristín Tómasdóttir 5. 13 þrautir jólasveinanna - Huginn Þór Grétarsson 6. Lokkar - Theodóra Mjöll Skúladóttir Jack / Saga Sig. 7. Múrinn - Sif Sigmarsdóttir 8. Stuðbók Sveppa - Sverrir Þór Sverrisson 9. Strokubörnin á Skuggaskeri - Sigrún Eldjárn 10. Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað - Sigríður Arnardóttir / Freydís KristjánsdóttirÞýddar barnabækur 1. Amma glæpon -David Walliams 2. Kafteinn Ofurbrók og hefnd g.r. - Dav Pilkey 3. Fjársjóðskistan : Kvöldsögur - Ýmsir 4. Hinir einu sönnu One Direction - Jen Wainwright 5. Jólasyrpa 2013 - Walt Disney 6. Byggjum úr LEGO - Daniel Lipkowitz 7. Jólabókin 2013 - Maria Rita Gentali 8. Dagbók Kidda klaufa 5 - Jeff Kinney 9. Skúli skelfir og Bína brjálaða - Francesca Simon 10. Jólagleði - SetbergFræði og almennt efni 1. Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir 2. Guðni : léttur í lund - Guðni Ágústsson 3. Útkall : lífróður - Óttar Sveinsson 4. Háski í hafi - Illugi Jökulsson 5. Prjónabiblían - Gréta Sörensen 6. Læknirinn í eldhúsinu - Ragnar Freyr Ingvarsson 7. Förðun : skref fyrir skref - Kristín Stefánsdóttir 8. Matargleði Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsd. 9. Naglaskraut - Donne Geer 10. Sir Alex - Guðjón Ingi EiríkssonLjóð 1. Árleysi alda - Bjarki Karlsson 2. Megas - Magnús Þór Jónsson 3. Krosshólshlátur - Ýmsir 4. Ljóðaúrval - Jónas Hallgrímsson 5. Stolin krækiber - Dagbjartur Dagbjartss. / Bjarni Þór Bjarnas. 6. Sonnettugeigur - Valdimar Tómasson 7. Fjórða Davíðsbók - Davíð Hjálmar Haraldsson 8. Skessukatlar - Þorsteinn frá Hamri 9. Ljóð 1954-2004 - Tomas Tranströmer 10. Að sigra heiminn - Steinn Steinarr Kiljulistinn 1. Ólæsinginn sem kunni að reikna - Jonas Jonasson 2. Pabbinn - Bjarni Haukur Þórsson 3. Týndu árin - Mary Higgins Clark 4. My pussy is hungry - Hugleikur Dagsson 5. Gröfin á fjallinu - Hjort Rosenfeldt 6. Maður sem heitir Ove - Fredrik Beckman 7. Konungar kljást - George R.R. Martin 8. Ógæfa - Hugleikur Dagsson / Rán Flygenring 9. Veiðihundarnir - Jørn Lier Horst 10. Úlfshjarta - Stefán Máni
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“