Ekkert trúnaðarbrot við Pál til staðar Jakob Bjarnar skrifar 17. desember 2013 13:53 Páli Magnússyni og Ingva Hrafni greinir á um ástæður uppsagnar Páls.
Páll Magnússon hefur látið af störfum og í tilkynningu frá honum kemur fram að það sé vegna þess að hann njóti ekki lengur trausts stjórnar. Eða eins og segir í tilkynningunni að traustið hafi ekki verið fyrir hendi og því hljóti leiðir að skilja. Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV ohf, segir þetta ekki allskostar rétt. „Það er ekki forsenda hjá stjórninni fyrir þessari niðurstöðu; að það hafi átt sér stað einhvers konar trúnaðarbrot,“ segir Ingvi Hrafn. Og hann heldur áfram: „Ný lög um ríkisútvarpið fela í sér að stjórnin þarf nú að breyta ráðningafyrirkomulagi útvarpsstjóra og festa ráðninguna til fimm ára. Stjórn hefur komist sameiginlega að þeirri niðurstöðu að það sé óhjákvæmilegt að auglýsa stöðuna núna, af þessu tilefni. Þegar þessi afstaða stjórnar lá fyrir var það sameiginleg ákvörðun stjórnar og Páls að hann myndi láta af störfum.“ Páll var á ótímabundnum samningi og stjórn hefði þess vegna getað ráðið hann áfram, samningur hans mun ekki hafa verið bundinn af nýjum lögum. Stjórnin ákvað hins vegar að rétt væri, í ljósi anda laganna, að auglýsa stöðuna. Páll mun hafa metið það sem svo að um vantraust væri að ræða. En, eins og Ingvi Hrafn segir er það ekki rétt metið, frá sjónarhóli stjórnar sem þakkar Páli vel unnin störf. Að sögn Ingva Hrafns verður staða útvarpsstjóra auglýst laus við fyrsta tækifæri. ... Páll hefur verið í stóli útvarpsstjóra í átta ár en í mars á þessu ári tók ný lög gildi og segir í 11. grein laga um Ríkisútvarpið:11. gr.Útvarpsstjóri. Útvarpsstjóri er framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins og skal uppfylla hæfisskilyrði skv. 5. mgr. 9. gr. Útvarpsstjóri skal ráðinn til fimm ára í senn og er heimilt að endurráða hann einu sinni. Hann hefur daglegan rekstur Ríkisútvarpsins með höndum og er jafnframt æðsti yfirmaður allrar dagskrárgerðar. Við daglegan rekstur Ríkisútvarpsins skal útvarpsstjóri hafa að leiðarljósi hlutverk og skyldur þess eins og kveðið er á um í lögum þessum. Útvarpsstjóri ræður aðra starfsmenn Ríkisútvarpsins. Stöður stjórnenda Ríkisútvarpsins skulu auglýstar opinberlega.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira