Valdís Gunnarsdóttir jarðsungin í dag Jakob Bjarnar skrifar 18. desember 2013 10:34
Útvarpskonan vinsæla, Valdís Gunnarsdóttir, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hún lést langt fyrir aldur fram eftir stutta sjúkralegu. Fjölmargir vinir hennar og samstarfsmenn sendu henni kveðju í formi minningargreina í Morgunblaðinu í dag: „Valdís Gunnarsdóttir var eins og silkimjúkt flauel, fjólublátt. Röddin undurþýð, seiðandi og rómantísk, nærvera hennar einstaklega notaleg og augnaráðið geislaði af umhyggju,“ skrifar Þorgrímur Þráinsson rithöfundur um vinkonu sína. Valdís starfaði lengstum sem flugfreyja sem og við útvarp þar sem stjarna hennar reis hátt til lofts; fyrst var hún á Rás 2 en þekktust er hún fyrir þætti sína á Bylgjunni. Hennar verður meðal annars minnst fyrir það að hefja Valentínusardaginn til vegs og vinsælda á Íslandi. „Valdís hafði algjöra sérstöðu sem útvarpskona og hún setti ný viðmið. Hún var stjarna,“ skrifar Jón Axel Ólafsson útgefandi og fyrrverandi útvarpsmaður. Hann kallar Valdísi Drottningu ljósvakans. Og vinur hennar Sigurður H. Hlöðversson, útvarpsmaðurinn Siggi Hlö, skrifar: „Valdís verður í mínum huga alltaf stærsta kvenútvarpsstjarna þjóðarinnar.“ Og söngvarinn og fyrrverandi útvarpsstjórinn Björgvin Halldórsson skrifar: „Rödd Valdísar er þögnuð en minningin mun lifa.“ Valdís fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1958 en lést 8. desember 2013. Valdís eignaðist tvö börn, Gretu Lind Kristjánsdóttur, f. 1973, en hún ólst upp hjá ömmu sinni og afa í föðurætt og Hrafn Valdísarson sem fæddur er 1994. Stofnaður hefur verið sérstakur söfnunarreikningur fyrir son Valdísar, fyrir þá sem vilja minnast hennar: 0546-14-402988. Kt. 070594-2429.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira