Segir að stjórnarandstaðan hafi náð að gera vont fjárlagafrumvarp aðeins betra Höskuldur Kári Schram skrifar 18. desember 2013 12:18 Árni Páll Árnason, Vigdís Hauksdóttir og Katrín Jakobsdóttir.
Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir að með samkomulagi formanna stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka hafi vont fjárlagafrumvarp með vitlausa forgangsröðun aðeins skánað. Formenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka náðu seint í gærkvöldi samkomulagi um þinglok og afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins. Önnur umræða um frumvarpið hafði þá staðið yfir í nærri þrjátíu klukkustundir. Samkvæmt samkomulaginu verður meðal annars fallið frá komugjöldum á sjúkrahús, atvinnlausir fá rúmlega 50 þúsund króna desemberuppbót, fjárframlag til rannsóknar- og vísindasjóða verður hækkað og þá verður skipuð þverpólitísk nefnd sem á að móta reglur um álagningu gjalds á nýjar fisktegundir í íslenskri lögsögu. Er meðal annars verið að horfa til makríls í því samhengi. Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að samkomulagið muni áhrif á ááætlaðan tekjuafgang ríkissjóðs á næst ári. „Það verður til þess að það verður ekki eins mikill tekjuafgangur eins lagt var upp með fyrir aðra umræðu en við eigum fyrir þessu. Við erum réttum megin við núllið,“ segir Vigdís. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir að frumvarpið hafi tekið breytingum til hins betra. „Vont fjárlagafrumvarp með vitlausa forgangsröðun hefur aðeins skánað. Okkur hefur tekist að vinda ofan af ýmsum af þeim verstu þáttum sem birtust í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Auðvitað er margt enn sem við hefðum viljað ná að hafa áhrif á til góðs eins og framlög til þróunarsamvinnu osfrv. en við náum ákveðnum árangri að þessu leyti,“ segir Árni. Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna tekur í sama streng. „Ég fagna því að okkar málflutningur hafi skilað góðum breytingum á frumvarpinu,“ segir Katrín. Hún telur þó ekki að breytingarnar séu svo miklar að hægt verði að skapa þjóðarsátt um frumvarpið. „Ég myndi ekki nota orðið þjóðarsátt um þetta frumvarp enda er auðvitað margt sem stendur út af. Það sem skiptir mestu máli að þarna hafa verið gerðar ákveðnar umbætur en þar með er ekki sagt að við munum styðja allt frumvarpið,“ segir Katrín.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira