Læsi minnst á Suðurnesjum Jakob Bjarnar skrifar 4. desember 2013 12:41 Árni Sigfússon segir Suðurnesjamenn vana því að takast á við áföll.
Slæm niðurstaða ungmenna á Suðurnesjum í síðustu PISA-könnun kemur Árna Sigfússyni bæjarstjóra á óvart því þar hafa krakkar verið mjög að sækja í sig veðrið í samræmdum prófum.Suðurnesjamenn vanir áföllum PISA-könnunin og niðurstöður hennar fyrir árið 2012 var kynnt var í gær, og talar Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra um áfall. Íslensk ungmenni eru að koma illa út, og krakkarnir á Suðurnesjunum sýnu verst sé miðað við aðra landshluta, þá er varðar lesskilning. Í könnuninni skiptast nemendur í mismunandi hæfnisþrep og skera Suðurnes sig úr að því leyti að þar eru hlutfallslega flestir lesendur á eða undir þrepi 1 í lesskilningi. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, vill ekki mála skrattann á vegginn. „Við erum reyndar svo vön því að glíma við verkefni, hvort sem það er þegar herinn fer, og geta menn þá talað um áfall eða varðandi þessa stöðu. Við erum stöðugt að glíma við þetta verkefni. Lífið er bara þannig að einn daginn eru gleðifréttir og annan ekki. Við þurfum bara að vinna okkur í gegnum það. Aðalatriðið er að horfa raunsætt á þetta, gleðjast yfir því sem vel er gert og taka á því sem taka þarf á. Þetta er vissulega það verkefni og ég í sjálfu sér kvíði því ekki, við erum með frábæran hóp hér skólamanna, foreldra sem hafa mikinn áhuga á að taka á þessu máli og við munum sannarlega geta sýnt það á næstu árum að í PISA, eins og öðru, getum við sannarlega náð árangri.“Árni brattur fyrir hönd síns fólks Árni lætur engan bilbug á sér að finna; þetta sé áminning um að taka betur á þessum málum. Niðurstaðan kemur Árna reyndar á óvart í ljósi ágæts árangurs krakka á Suðurnesjum að undanförnu í samræmdu prófunum. Þar hafa Suðurnesjamenn verið í sókn allt frá 2005; í stærðfræði og ensku og komin yfir landsmeðaltal. „Frábær árangur og við erum stolt af því. Reyndar hefur verið sókn í íslensku en ekki með sama hætti, erum enn undir landsmeðaltali og það skýrir kannski þessa umræðu um lesskilning. En, svo koma þessar upplýsingar um PISA, þær eru reyndar gamlar. Við gerðum miklar breytingar og vorum með nýjar áherslur í lestrarmálunum, 2010 og 2011 þannig að við erum að gera ráð fyrir því að þau muni skila sér í PISA 2015. Það er ekkert annað en horfa á þetta sem verkefni og segja að við ætlum líka að vera góð í PISA. Erum þegar orðin það í samræmdum prófum.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira