Lífið

Laddi áfram í spaugstofunni

Laddi með félögum sínum í Spaugstofunni.
Laddi með félögum sínum í Spaugstofunni. Mynd/GVA
Laddi, eða Þórhallur Sigurðsson eins og hann heitir í þjóðskránni, var raunar einn af stofnendum Spaugstofunnar árið 1986. „Þá voru framleiddir fjórir þættir undir heitinu Spaugstofan. Svo hætti ég, fór í Gríniðjuna með Gísla Rúnari og fór að gera Heilsubælið. Spaugstofan hélt áfram án mín og fór að gera fasta vikulega þætti með góðum árangri,“ segir Laddi. Í upphafi var Pálmi Gestsson ekki í hópnum en hann gekk til liðs við Spaug­stofuna árið 1989.

Spaug­stofumenn hafa átt óvið­jafnanlegu gengi að fagna enda hefur þáttur þeirra verið í gangi í Sjónvarpinu og síðan á Stöð 2 með hléum frá því í janúar 1989, þegar hann hóf göngu sína undir nafninu ’89 á stöðinni. Árið eftir hét hún ’90 af stöðinni og enn síðar Enn ein stöðin.

Laddi hefur eins og aðrir landsmenn fylgst með þeim félögum á skjánum í gegnum árin en fékk nú í haust loks að ganga til liðs við þá á ný. „Það er alveg frábært að vinna með Spaugstofumönnum. Stemningin á tökustað er alltaf góð. Það er rosalega gaman hjá okkur enda mikið grínað og hlegið,“ segir Laddi og bætir við að oft kvikni nýjar hugmyndir á tökustað sem þróist jafnvel í glænýja sketsa.

En urðu einhverjar breytingar á Spaugstofunni við komu Ladda? „Auðvitað breytist alltaf eitthvað þegar nýr maður kemur inn. Það koma fleiri hugmyndir fram og fleiri karakterar bætast í hópinn,“ segir Laddi og segist smellpassa inn í hópinn. „Enda erum við með mjög svipaðan húmor,“ segir hann glettinn.

Spaugstofan verður á sínum stað nk. laugardag á Stöð 2. Ladda þykir líklegt að þeir verði á jólalegum nótum líkt og þjóðfélagið enda endurspegla þættirnir oftar en ekki það sem er að gerast í samfélaginu á hverjum tíma. En er alltaf úr nægu að moða? „Það er misjafnt. Stundum er eitthvað lítið að gerast og þá er þetta erfiðara. Þá erum við bara með eitthvað léttara inni á milli.“

Milli jóla og nýárs, laugardaginn 28. desember, verður sérstakur hátíðarþáttur af Spaugstofunni þar sem birt verður brot af því besta með Spaugstofunni í vetur. „Ég get lofað því að hann verður góður,“ segir Laddi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.