Risastóri jólaþátturinn 4. desember 2013 13:27 Logi Bergmann stýrir Risastóra jólaþættinum 20. desember á Stöð 2. Mynd/Stefán
Árlegur jólaþáttur Loga í beinni ber yfirskriftina Risastóri jólaþátturinn og verður sýndur 20. desember á Stöð 2. Ekkert verður til sparað frekar en venjulega. Fjöldi góðra gesta kemur í heimsókn og líkt og í fyrri jólaþáttum mun tónlistin skipa stóran sess. Sjálfur er Logi Bergmann mikið jólabarn og árlegur jólaþáttur hans er vandræðalega stór að hans sögn. „Þetta er fimmta árið í röð sem við höfum svona jólaþátt og við reynum alltaf að gera meira en við ráðum við. Ég geri ráð fyrir um 20 gestum en venjulega er ég með þrjá gesti í hverjum þætti. Síðan má gera ráð fyrir sex til sjö tónlistaratriðum, þannig að þetta verður rosalega gaman hjá okkur.“ Jólaþátturinn verður sýndur fjórum dögum fyrir aðfangadag og því gerir Logi ráð fyrir góðri jólastemningu í salnum. „Reyndar byrjum við að keyra upp jólastemninguna í þættinum á undan sem verður sýndur 13. desember, þannig að tveir síðustu þættirnir fyrir jólin verði miklir jólaþættir. Það er ekki alveg ljóst á þessu stigi hverjir koma fram í jólaþættinum en þó má greina frá því að Bubbi Morthens syngur þar auk systkinanna KK og Ellenar Kristjánsdóttur. Síðan skýrist þetta allt saman þegar nær dregur en ég get lofað skemmtilegum gestum og flytjendum.“ Á Þorláksmessu verður auk þess sýndur sérstakur þáttur þar sem búið er að klippa saman jólalög úr eldri þáttum Loga. „Á síðustu árum hafa safnast saman mörg skemmtileg jólalög sem flutt hafa verið í þættinum. Við erum að tala um flytjendur eins og Ríó tríó, Ragga Bjarna, Helgu Möller, Sigurð Guðmundsson og Baggalút. Þessir flytjendur, ásamt öðrum, flytja bæði eigin lög og lög eftir aðra.“ Sem fyrr segir er Logi mikið jólabarn og eru íslensk jólalög og íslenskir flytjendur í mestu uppáhaldi. „Lagið Léttur um jólin með Ríó tríói er í miklu uppáhaldi hjá mér en það kom út á plötunni Jólastjörnur, árið 1976, sem var mikið spiluð á æskuheimili mínu. Það var skemmtileg stund þegar ég fékk þá félaga til mín og þeir tóku lagið í þættinum hjá mér enda lengi verið draumur minn. Hann segist einnig hafa hlustað mikið á jólaplötu Brunaliðsins, Með eld í hjarta, þegar hann var barn. „Af nýlegra efni má nefna Sigurð Guðmundsson en ég er ofsalega hrifinn af honum. Hann gaf út jólaplötu fyrir fáeinum árum sem er strax orðin sígild í huga mínum. Svo má ekki gleyma Björgvini Halldórssyni sem á örugglega 100 jólalög sem eru stór hluti af jólum landsmanna.“ Þátturinn Logi í beinni fer í frí eftir áramót og tekur þá við spurningaþátturinn vinsæli Spurningabomban. „Þátturinn verður með svipuðu sniði og undanfarin ár þótt einhverjar nýjungar muni hugsanlega bætast við. Við höldum þó þessu klassíska og þannig verður Rúnar Freyr til dæmis á sínum stað. Við byrjum strax eftir áramót með Áramótabombuna sem er nokkurs konar áramótauppgjör okkar. Þá verða fleiri gestir en venjulega og árinu skipt í hluta. Þetta verður stærsti bombuþáttur ársins.“
Mest lesið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Fleiri fréttir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Sjá meira