Stærsta gjöf Íslandssögunnar í uppsiglingu í komandi kjarasamningum Heimir Már Pétursson skrifar 5. desember 2013 14:00 Drífandi í Vestmannaeyjum segir alvarlegt að hugmyndir um nánasarlegar launahækkanir komi úr herbúðum verkalýðshreyfingarinnar
Samninganefnd Drífanda stéttarfélags í Vestmannaeyjum lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun samningaviðræðna milli atvinnurekenda og launafólks undanfarna daga. Í ályktun félagsins segir að enn eina ferðina eigi að skammta almennu verkafólki skammarlegar upphæðir meðan hálaunafólk fái hundruð þúsunda í mánaðarhækkanir á sín laun. Það alvarlega í málinu sé að hugmyndir um þessar nánasarlegu hækkanir komi einar og óstuddar innan úr herbúðum verkalýðshreyfingarinnar og sem grafi undan lífsafkomu fólks, en tryggi forystumönnum hennar tugum og hundruðum prósenta meiri launahækkanir en ætlaðar séu almennum félagsmönnum. „Sannarlega er misjafnt hve mikið atvinnugreinar þola að taka á sig launahækkanir. En algjörlega er ljóst að útflutningsatvinnugreinar myndu þola tugprósenta launahækkun í ljósi tugmilljarða afkomu þeirra undanfarin ár og í ljósi afsláttar er mörg þeirra hafa fengið á auðlindagjaldi,“ segir í ályktun Drífanda. Það sæti því furðu að í uppsiglingu sé framhald á einni stærstu gjöf Íslandssögunnar fyrr og síðar til fiskvinnslunnar í landinu í boði verkalýðshreyfingarinnar, í formi launaafsláttar. Þeir sem þurfi að bera þessa gjöf til atvinnurekenda í launaumslögum sínum sé fólk á töxtum sem séu undir og rétt við lögbundin lágmarkslaun í landinu. Sama fólk og muni verða skilið eftir hvort sem skattlækkunartillögur ríkisstjórnarinnar eða ASÍ verð að veruleika. „Samninganefnd Drífanda skorar á samninganefndir Starfsgreinasambandsins og ASÍ að hysja upp um sig buxurnar, koma sér út úr þægindahringnum, og sækja launin sem sannarlega er innistæða fyrir til fyrirtækjanna,“ segir í ályktuninni, en þar er vísað til fiskvinnslunnar sem hagnast hafi á falli krónunnar undanfarin ár.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira