1,5 milljarðar í tækjakaup Svavar Hávarðsson skrifar 6. desember 2013 08:53 Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra
Áætlun Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra um að veita tæplega 1,5 milljarða króna til tækjakaupa á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri var kynnt í ríkisstjórn á föstudag. Fjárlaganefnd fékk minnisblað þessa efnis til umfjöllunar í gær. Kristján Þór segir alltaf hafa staðið til að kynna hugmyndir um fjárframlag til tækjakaupa í ríkisstjórn og fjárlaganefnd fyrir aðra umræðu fjárlaga enda var það tiltekið í frumvarpinu. „Ég hef kynnt tækjakaupaáætlun í ríkisstjórninni og sendi svo nefndinni minnisblað um það. Þar geri ég ráð fyrir að Landspítalinn muni fá 1.262 milljónir króna og sjúkrahúsið á Akureyri fái 273 milljónir á næsta ári. Svo verður að koma í ljós hvernig fjárlaganefnd fer með þetta. En í ljósi umræðunnar inni í nefndinni, og samstöðunnar, þá er ég bjartsýnn á að menn bregðist vel við. Það kemur svo í ljós hvernig afgreiðsla nefndarinnar verður þegar frumvarpið kemur til annarrar umræðu,“ segir Kristján Þór. Eins og fram hefur komið munu framlög til Landspítalans verða aukin um þrjá til fjóra milljarða króna frá upphaflegum forsendum fjárlaga, náist samstaða hjá stjórnarflokkunum um niðurskurð á móti. Kristján vill ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann sé að vinna að framgangi þessa tiltekna máls í samræmi við þær áherslur sem ríkisstjórnin boðaði þegar frumvarpið var lagt fram. Fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs vegna rekstrar Landspítalans næmu 38,5 milljörðum króna. Stjórnendum spítalans var brugðið þegar frumvarpið var kynnt í byrjun október. Þá var tímabundin 600 milljóna króna fjárveiting til tækjakaupa felld niður, en Kristján Þór tók strax af allan vafa um það að fjármagn yrði veitt til þessa liðar og aðgerðin kynnt við aðra umræðu frumvarpsins.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira