Stefnt að malbikun hjólreiðastíga á Hverfisgötu fyrir helgi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. desember 2013 17:48 mynd/Reykjavíkurborg
Verið er að ganga frá snjóbræðslu í gangstéttar að sunnanverðu á stórum kafla við Hverfisgötu. Stefnt er að malbikun hjólastíga og hellulögn næstu daga. Á föstudag verður opnað fyrir bílaumferð niður Hverfisgötu frá Vatnsstíg. Margir starfsmenn verktaka hafa verið að störfum við Hverfisgötu við erfiðar aðstæður að því er kemur fram á vefsíðu Reykjavíkurborgar. Vinna við endurgerð Hverfisgötu frá Vitastíg niður að Klapparstíg hófst upp úr miðjum júlí. Aðgerðin er mjög umfangsmikil. Endurnýja á allt yfirborð gangstétta og götu ásamt öllum lögnum. Malbikaðar hjólareinar verða beggja vegna götu. Gatnamót við þvergötur verða steinlögð og upphækkuð. Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót. Á vefsíðunni segir að til hafi staðið að framkvæmdunum lyki í nóvember en það hafi ekki gengið eftir af ýmsum ástæðum svo sem seinlegrar lagnavinnu. Eftir að vinna hófst hafi svo verið ákveðið að seinka upphafi framkvæmda á gatnamótum Hverfisgötu og Frakkastígs til að auðvelda flæði umferðar um miðborgina. Ekki var byrjað að grafa fyrir lögnum þar fyrr en undir lok október og eðli málsins vegna seinki verklokum í samræmi við það. Verið sé að ganga frá fyllingum við fráveitulagnir og verður þá strax greiðfærara fyrir gangandi vegfarendur um svæðið. Endanlegum frágangi á þessum gatnamótum lýkur eftir jól.
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Fleiri fréttir Engu mátti muna á að alvarlegur árekstrur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Sjá meira