Ný biðdeild opnuð á Vífilsstöðum í dag: "Það ætti að hætta notkun slíkra deilda" Hrund Þórsdóttir skrifar 20. nóvember 2013 20:00 Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, segir æskilegt að hætta notkun biðdeilda.
Húsnæðið á Vífilsstöðum hefur staðið autt frá því í apríl en í dag verður opnuð þar ný deild fyrir sjúklinga af Landspítalanum sem bíða flutnings á hjúkrunarheimili. Um biðdeild er því að ræða. Talað hefur verið um að þarna skapist 42 rými, sem ætlað er að létta álagi af lyflækningasviði Landspítalans, en sumir starfsmenn spítalans eru ósáttir við þá túlkun, þar sem 18 rýma hjúkrunardeild verður í raun flutt á Vífilsstaði, af Landakoti. „Á móti kemur að deildinni á Landakoti, með 18 rúmum, verður lokað og samkvæmt reikningum sem ég lærði í barnaskóla þá mun biðrýmum í öldrun fjölgar um 24,“ segir Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öldrunarhjúkrun. Sigrún segir að fólk sem lokið hafi meðferð eigi ekki að liggja á Landspítalanum; það sé slæm meðferð á opinberu fé og ekki gott fyrir sjúklingana. Að því leyti sé gott að fá ný rými á Vífilsstaði en hún er hins vegar ósátt við biðdeildir yfir höfuð og vill að notkun þeirra verði hætt. „Það er nógur flækingur á gamla fólkinu samt, áður en það kemst á hjúkrunarheimili. Það ætti að fara beint af endurhæfingardeildinni sem það er statt á, eða þess vegna bráðdeildinni og yfir á hjúkrunarheimili,“ segir Sigrún. Ekki hefur verið hægt að útskrifa allt að 50 sjúklinga af Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarheimilum og Sigrún segir heimaþjónustu líka fjársvelta og undirmannaða. Stefna stjórnvalda sé að sem flestir geti búið heima hjá sér sem lengst, en úrræði skorti. „Það hefur verið unnið talsvert í því, sérstaklega hjá Reykjavíkurborg, að bæta heimaþjónustuna en ég myndi nú samt segja að hún væri á „barnaveikistiginu“ ennþá, ef hún er borin saman við skandinavísku löndin.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira