Innlent

Stefnt að því að opna Bláfjöll um helgina

Stuð hjá þessum brettaköppum í Bláfjöllum
Stuð hjá þessum brettaköppum í Bláfjöllum mynd/vilhelm
Stefnt er að því að opna Bláfjöll á laugardaginn en nú er verið að gera allt klárt á skíðasvæðinu.

Það hefur snjóað duglega í Bláfjöllum síðustu vikur og styttist nú óðum í að skíða- og brettaunnendur geti farið að renna sér. Í frétt á heimasíðu rekstraraðila Bláfjalla er gert ráð fyrir að opna skíðasvæðið um helgina.

Ekki náðist í Magnús Árnason framkvæmdastjóra skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×