Innlent

Tvö innbrot í nótt

Brotist var inn í tölvuverslun í austurborginni í nótt og er nú verið að kanna hversu miklu var stolið þar. Þjófurinn, eða þjófarnir, komust undan og eru ófundnir. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í nótt, en þegar íbúar urðu þjófsins varir, tók hann til fótanna og hvarf að öllum líkindum tómhentur út í náttmyrkrið. Ekki er vitað um nánari deili á honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×