Innlent

Sveinn Rúnar enn fastur á Gasa

Heimir Már Pétursson skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson beið allan gærdaginn við landamærin og reyndi árangurslaust að komst yfir til Egyptalands.
Sveinn Rúnar Hauksson beið allan gærdaginn við landamærin og reyndi árangurslaust að komst yfir til Egyptalands. Aðsend mynd
Sveinn Rúnar Hauksson læknir og formaður Ísland-Palestína komst ekki yfir landamærin frá Gasa til Egyptalands í dag en hann hefur árangurslaust reynt að komast yfir landamærin og áfram til Kairó í ellefu daga.

„Egyptar lokuðu einfaldlega. Þeir hleyptu þremur rútum í gegn fyrir klukkan ellefu í morgun.  Síðan var þetta bara hægagangur og fjórða rútan komst aldrei inn á brottfararsvæðið, en ég var ásamt öðrum í henni,“ segir Sveinn Rúnar.

Hann segir erfitt að fá skýringar á þessum seinagangi sem bitni á þúsundum manna. En hann ætlaði að ná flugi frá Kairó í fyrramálið og hefur nú þegar keypt tvo flugmiða sem ekki nýtast.

„Ég hef engar vonir um að komast yfir á næstu dögum. Það er föstudagur á morgun og þá er alltaf lokað. Og það er alls ekki við því búist að þarna verði opnað aftur næstu vikuna,“ segir hann.

Sveinn Rúnar segir að nú muni hann gera tilraun til að komast frá Gasa Ísraels meginn en það ferli taki langan tíma. Hann verði því að öllum líkindum í a.m.k tvær vikur til viðbótar á Gasa. Tíminn fer mikið í bið en getur hann orðið að einhverju gagni á meðan hann bíður?

„Já, já ég er alveg ákveðinn í að nota þennan tíma,“ svarar Sveinn Rúnar. Hann muni t.d. flytja fyrirlestur í læknadeild annars af stærri háskólum svæðisins og flytja erindi um fíknivanda í íslamska háskólanum.

„Og það er mikill áhugi vegna þess að vandamálið er að verða mjög stórt hérna,  sem ekki var áður. Það er engin drykkja á fólki, það er ekkert áfengi sem heitið getur fyrir utan lítilsháttar heimabrugg. En vandamálið er tramadol og hass og það er brýn þörf á meðferðarstöð hérna,“ segir Sveinn Rúnar sem situr ekki auðum höndum á meðan hann bíður þess að komast heim frá Gasa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×