Furðar sig á ákvörðun forsætisnefndar Alþingis að kæra borgina 22. nóvember 2013 13:03 Óttarr Proppé, þingmaður Bjartrar framtíðar.
Óttarr Proppé fulltrúi Bjartrar framtíðar í forsætisnefnd Alþingis furðar sig á þeirri ákvörðun meirihluta nefndarinnar að kæra Reykjavíkurborg vegna deiliskipulags á Landsímareit. Deiliskipulagið á Landsímareit við Austurvöll hefur verið umdeilt en forseti Alþingis telur að skipulagið þrengi að starfsemi Alþingis. Meirihluti forsætisnefndar Alþingis samþykkti nýverið að kæra borgina til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála vegna þessa.Í kærunni er Reykjavíkurborg sögð brjóta gegn 36. grein stjórnarskrárinnar þar sem segir að Alþingi sé friðheilagt og engin megi raska frið þess né frelsi. Óttar Proppé, þingmaður og fulltrúi Bjartrar framtíðar í forsætisnefnd, er ósammála þeirri ákvörðun að kæra skipulagð. „Mér finnst þessi ákvörðun í raun og veru röng. Ég er ósammála henni. Það er ákveðin tilhneiging hjá Alþingi að virða ekki skyldur og ábyrgð sveitarfélaga til þess að setja skipulag á sínu svæði. Þó að þetta skipulag sé í nágrenni Alþingis þá er það ekki inni á því svæði sem er skilgreint sem atvinnusvæði Alþingis,“ segir Óttarr. Hann efast um þá staðhæfingu að hið nýja skipulag þrengi að starfsemi Alþingis. „Alþingi er er staðsett í Kvosinni sem er gamli miðbærinn og kjarni borgarinnar. Alþingi er þannig í nánu sambandi við borgina og fólkið. Útlendingum finnst mjög merkilegt að sjá að almenningur geti bara labbað á gangstéttinni framhjá útidyrahurðunum á Alþingi. Þetta er sérstaða sem við eigum að halda í,“ segir Óttarr.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir höfðu legið ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira