Heimilt að veiða síld innan brúar í Kolgrafafirði Jakob Bjarnar skrifar 22. nóvember 2013 16:24 Sigurður Ingi brást skjótt við fréttum Bylgjunnar og Vísis af síldargengnd í Kolgrafafirði og hefur nú heimilað veiðar þar.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir að nú megi veiða síld innan brúar í Kolgrafafirði, og hefur þannig brugðist skjótt við fréttum Vísis og Bylgjunnar af mikilli síld í firðinum. Reglugerðin kveður á um að nú eru heimilar frjálsar veiðar smábáta innan við brú. Þetta eru viðbrögð stjórnvalda við því að Kolgrafafjörður er fullur af síld, og heimamenn óttast síldardauða eins og varð síðastliðinn vetur. „Ég hef heimilað frjálsar veiðar fyrir innan brú. Það er auðvitað gert í tvennum tilgangi: Bjarga verðmætum ef til þess kæmi að síldin drepist, en ekki auðvitað er ekki gott að meta það. En, þarna má nú stunda frjálsar veiðar. Og svo gæti þetta haft fælingarmátt; að síldin fari þá jafnvel þarna út,“ segir sjávarútvegsráðherra sem vill brýna fyrir sjómönnum sem færu til þessara veiða fari að öllu með gát, til dæmis þegar farið er undir brú og inn í fjörðinn. Leyfið tekur gildi frá og með deginum í dag. „Við erum búin að gefa út reglugerð til þess að koma þessu strax af stað. Erfitt er um að spá hvort komi til umhverfisslyss en þess vegna grípum við til þessara ráða. Jafnframt er ég í sambandi við innanríkisráðuneytið um að ef til þess kæmi að síld fari að drepast þarna þá verði vegur rofinn til að koma á hringrás.“ Snögglega er því brugðist við fréttum um síldargengd í Kolgrafafirði sem er fullur af síld fyrir innan brú þriðja árið í röð en sjómenn á minni bátum höfðu ekki heimild til að veiða hana. Pálmi Stefánsson skipstjóri á Kidda RE sem er átta tonna trilla, fór inn fyrir brú á bát sínum fyrr í dag og sá þá miklar síldartorfur þar. Í Kolgrafarfirði hafa í heildina drepist rúmlega 50.000 tonn; niðurstöður mælinga Hafrannsóknastofnunar benda til þess að um 22.000 tonn af síld hafi drepist í Kolgrafafirði föstudaginn 1. febrúar. Það kom til viðbótar þeim 30.000 tonnum sem drápust í firðinum í desember 2012.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira