Innlent

Hákarl drap brimbrettamann

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
35 ára karlmaður lést í morgun þegar hákarl réðst á hann undan ströndum Gracetown í Ástralíu. Maðurinn var við brimbrettaæfingar þegar atvikið átti sér stað en vitni segja að þegar lík hans var dregið á land hafi vantað á hann annan handlegginn.

Er þetta þriðja hákarlaárásin sem á sér stað undan ströndum Gracetown á síðastliðnum tíu árum en alls hafa tíu manns látið lífið í hákarlaárásum í vesturhluta Ástralíu á síðustu níu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×