Nóg til af lækningatækjum á Íslandi en ekki á sjúkrahúsum Heimir Már Pétursson skrifar 24. nóvember 2013 12:22
Mikið hefur verið rætt um skort á mikilvægum lækningatækjum á Íslandi sem og flótta lækna og hjúkrunarfræðingar frá landinu eftir hrun. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir umsjónarmaður meistaranáms í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands sagði á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun segir útgjöld til heilbrigðismála hér mjög álíka og meðalútgjöld OECD ríkjanna. En þar séu lönd auðvitað misjöfn. „Löndin sem eru hærri en við eru frekar þau lönd sem við höfum viljað bera okkur saman við. Það eru lönd í vestur Evrópu , það eru Norðurlöndin, Holland, Þýskaland, Sviss og svo framvegis. Þannig að ef við viljum bera okkur saman við þessi lönd eru útgjöld til heilbrigðismála lægri hér á Íslandi,“ sagði Tinna Laufey. Laufey segir mikið hafa heyrst frá Landsspítalanum að þar vanti tæki. Algengt sé að nota fjölda segulmyndatækja og sneiðmyndatækja sem mælikvarða á ástand mála hjá löndum. „Því að ég held að það sé raunverulegur skortur. Ég er ekki að gera lítið úr því. En hins vegar erum við vel yfir meðaltalinu hvað varðar þessi tæki, hversu mörg svona tæki við erum með pr. hundrað þúsund íbúa. Aftur á móti sjáum við að skiptingin á þessum tækjum að þau eru mun meira fyrir utan sjúkrahús.“ Þannig að þegar komi að fjölda þessara tækja á sjúkrahúsum sé Ísland undir meðaltali OECD. „Þau eru þá að einhverju leyti hjá sérfræðingum. Auðvitað þarf að einhverju leyti meira af tækjum í landi sem strjálbýlt og oft erfitt yfirferðar á vissum árstímum. En það eru þó inni í þessum samanburði mörg önnur lönd sem eru þannig líka. Svæði í norður Finnlandi, Noregi og fleiri stöðum. Þannig að við erum ekki ein á báti með það og það eru aðrir hlutir sem vinna með okkur, eins og það að við erum mjög ung þjóð,“ sagði Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira