Landsbankinn opnar nýja kynslóð útibúa Jón Júlíus Karlsson skrifar 25. nóvember 2013 20:00
Landsbankinn opnaði í dag nýja kynslóð bankaútibúa og það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Við Hagatorg er fyrsta bankaútibú landsins án gjaldkera.Útibú Landsbankans við Hagatorg í Reykjavík var opnað í dag eftir gagngerar breytingar. Áhersla verður lögð á ráðgjöf og persónulega þjónustu. Það sem helst vekur athygli er að engir gjaldkerar munu starfa í útibúinu en þess í stað geta viðskiptavinir notast við hraðbanka til að ná sér í lausafjámuni. Brynjólfur Ægir Sævarsson, útibústjóri Landsbankans í Vesturbæ, er ánægður með breytingarnar. Engin fækkun verður á starfsfólki og kalli viðskiptavina eftir betri þjónustu og ráðgjöf er svarað. „Við stígum fram fyrir afgreiðsluborðið og eigum fyrir vikið meiri tíma fyrir samtal við viðskiptavini,“ segir Brynjólfur.Brynjólfur Ægir Sævarsson, útibússtjóri Landsbankans í Vesturbæ.Bankaviðskipti Íslendinga fara í dag aðallega fram með rafrænum hætti. Með auðveldum hætti er hægt að sinna helstu bankaviðskiptum í gegnum netið eða með snjallsímum. Er tæknin að leysa bankastarfsmanninn af hólmi? „Nei, bara létta undir eins og annars staðar svo við höfum meiri tíma fyrir mannleg samskipti. Þetta er þróunarverkefni hjá okkur og við ætlum að læra af þessu, nýta það sem að viðskiptavinurinn hefur að segja og nýta það til að veita ennþá betri þjónustu,“ segir Brynjólfur Ægir. „Heimsóknum til gjaldkera hefur fækkað og hér getum við leiðbeint fólki ennþá betur með tæknilausnum. Þeir sem vilja læra og bjarga sér sjálfir - þeim getum við leiðbeint í gegnum tæknifrumskóginn.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira