20 ár frá einum mikilvægasta mánuði rappsögunnar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. nóvember 2013 22:30 Þessar þrjár plötur vöktu mikla athygli þegar þær komu út fyrir 20 árum síðan.
Nú eru liðin 20 ár frá gríðarlega mikilvægum mánuði í sögu rapptónlistar. Í nóvember árið 1993 komu út þrjár plötur sem hægt er að kalla klassískar. Midnight Marauders með A Tribe Called QuestMidnight Marauders9. nóvember 1993 gaf sveitin A Tribe Called Quest út plötuna Midnight Marauders, sem var þriðja breiðskífa sveitarinnar. Platan innihélt lagið Award Tour sem var söluhæsta smáskífa sem sveitin gaf út. Hægt er að sjá myndbandið við lagið hér fyrir neðan en í því kemur einnig fram rapparinn Trugoy úr vinasveit Tribe, De La Soul. Platan er yfirleitt flokkuð undir jazzskotna rapptónlist og er talin vera ein mikilvægasta plata rappsögunnar í þeim flokki. Textarnir fjalla um daglegt líf í fátækrahverfum bandarískra stórborga. Sveitin fjallaði lítið um ofbeldi, sem var vinsælt umfjöllunarefni rappara á þessum tíma, meira var lagt upp úr hversdagslegum hlutum auk þess sem fjallað var um kynþáttahatur og samskipti kynjanna. Platan náði platínusölu og var á lista bandaríska hip-hop tímaritsins The Source yfir 100 bestu plötur rappsögunnar.36 Chambers með Wu-Tang Clan36 ChambersSama dag kom platan 36 Chambers með Wu-Tang Clan út. Þrátt fyrir að tónlist Wu-Tang Clan væri lítt söluvæn náði platan fínum árangri á Billboard listanum í Bandaríkjunum og náði 41. sæti listans þegar best gekk. Velgengni plötunnar mátti betur merkja í áhrifum hennar innan hip-hop senunnar í Bandaríkjunum. Tímaritið Rolling Stone setti plötuna á lista yfir 500 bestu plötur sögunnar og eina af mikilvægustu breiðskífum 10. áratugarins. The Source gaf plötunni hæstu einkunn og sama má segja um hip-hop tímaritið XXL. MTV tónlistarstöðin hlóð lofi á plötuna, valdi hana eina af 100 bestu rappplötum allra tíma og valdi þrjú lög af plötunni á lista yfir 100 bestu rapplög allra tíma. Platan er oft talin hafa markað endurreisn rapptónlistar frá Austurströnd Bandaríkjanna, en sveitin kemur frá New York borg. Lög eins og C.R.E.A.M., Protect ya Neck og M.E.T.H.O.D. Man eru sígild rapplög. Skemmtileg samsetning rapptónlistar og hljóðbúta úr gömlum asískum kung fu bardagakvikmyndum vakti mikla athygli. Sveitin náði miklum vinsældum hér á landi á síðari hluta 10. áratugarins og mátti gjarnan sjá auðþekkjanlegt merki sveitarinnar á strætóskýlum og í undirgöngum. Hér fyrir neðan er eitt fyrsta myndbandið sem sveitin sendi frá sér haustið 1993 við lagið Da Mystery Of Chessboxin'. Það vakti strax gríðarlega athygli fyrir fersk efnistök sveitarinnar.Doggystyle með Snoop Doggy DoggDoggystyle Þann 23. nóvember kom platan Doggystyle með rapparanum Snoop Doggy Dogg út. Þetta var frumraun rapparans, sem er enn að undir nafninu Snoop Lion, eftir að hafa kallað sig Snoop Dogg í fjölda ára. Snoop vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína á plötu Dr. Dre sem bar titilinn The Chronic og kom út ári áður. Rappunnendur voru spenntir að heyra Snoop á sinni eigin plötu. Platan náði gífurlegum vinsældum, seldist í fimm milljónum eintaka í Bandaríkjunum, sem er fjórföld platínusala. Platan náði fyrsta sæti Billboard listans, var vinsælasta plata Bandaríkjanna. Platan fékk gífurlegt lof gagnrýnenda og þykir vera einhver albesta frumraun rappara í sögu hip-hop tónlistar. Lagið Who Am I (What‘s my Name)? náði gífurlegum vinsældum. Fleiri vinsæl lög má finna á plötunni. Serial Killa, Gin and Juice, G‘z and Hustlas og Lodi Dodi þykja öll sígild nú á dögum. Hún var á listum The Source, Rolling Stone og flestra helstu tónlistartímarita yfir mikilvægustu plötur 10. áratugarins.
Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira