"Á meðan kerfið er svona losnar hún ekki undan þessu“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 26. nóvember 2013 18:56
Faðir fjörtíu og fjögurra ára konu sem hefur verið háð læknadópi í tvö ár segir lyfseðlakerfið á Íslandi meingallað og ekkert eftirlit haft með lyfjaskömmtum sjúklinga. Dóttir mannsins ánetjaðist lyfseðilsskyldum lyfjum eftir að hún fór í aðgerð árið 2011, en í kjölfar aðgerðarinnar var hún sett á verkjalyf, svefnlyf og þunglyndislyf. Faðirinn segir hana hafa verið setta á of sterk lyf frá byrjun. Hálfu ári eftir aðgerðina leitaði konan læknisaðstoðar vegna magaverkja. Þá var henni tjáð að verkirnir stöfuðu af ofnotkun lyfja sem væru að lama líffæri hennar. „Þarna var hún bara orðin fíkill,“ segir faðirinn. Læknar senda lyfseðla í flestum tilfellum rafrænt í lyfjagátt apótekanna. Sá galli er á kerfinu að í flestum tilfellum geta læknar ekki séð hvaða lyfseðlar hafa þegar verið gefnir út á viðkomandi sjúkling. Faðirinn segir dóttur sína ganga á milli lækna og fá þá til að skrifa upp á lyf fyrir sig. „Hún fer bara á mismunandi staði og fær það sem hún vill. Þegar fólk er komið á þennan stað lýgur það bara," segir hann. Embætti landlæknis og Lyfjastofnun vinna nú að því að veita öllum læknum aðgang að Lyfseðlagáttinni með rafrænum skilríkjum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa nú um 340 læknar fengið slík skilríki. Skilríkin veita læknunum þó ekki aðgang að símsendum lyfjaávísunum og pappírslyfseðlum, sem eru enn í töluverðri notkun.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira