Innlent

Vél Icelandair snúið við vegna bilunar

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Vélin er lent aftur á Keflavíkurflugvelli. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Vélin er lent aftur á Keflavíkurflugvelli. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mynd/vilhelm
Farþegavél frá Icelandair á leið til New York var snúið við vegna tæknibilunar. Hún er lent á Keflavíkurflugvelli og unnið er að viðgerð.

Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, eru farþegar vélarinnar, um 170 talsins, enn um borð. Reiknað er með að vélin fari aftur í loftið eftir um klukkustund, en ef viðgerð tefst verða farþegarnir færðir á aðra vél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×