Stúlkur líklegri til að skaða sig eftir kynferðisofbeldi í æsku Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 27. nóvember 2013 19:23 Sigrún mun fjalla um málefnið og rannsóknir sínar á morgun í Háskólanum á Akureyri.
Hvernig takast unglingar sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi í barnæsku á við reynslu sína? Og er munur á kynjum? Sigrún Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, hefur rannsakað langtímaáhrif kynferðisofbeldis á fólk og hefur nú skrifað grein um málið sem birt verður í vísindatímaritinu Scandinavian Journal of Public Health. „Fólkið sem ég tók viðtöl við lýstu öll mikilli þrautargöngu sem enn sér ekki fyrir endann á,“ segir Sigrún í samtali við Akureyri vikublað í dag. Hún segir mikilvægt fyrir fagfólk, sérstaklega í skóla- og heilbrigðiskerfinu, að þekkja einkenni og afleiðingar kynferðislegs ofbeldis til að geta brugðist rétt við. Háskólinn á Akureyri býður til málstofu í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Þar mun Sigrún fjalla um málefnið og rannsóknir sínar. Hún segist sjá mun á því hvernig stúlkur og drengir bregðist við áfalli eftir kynferðisofbeldi. Stúlkurnar glími oft við mikla sálræna vanlíðan og séu líklegri til að skaða sjálfar sig. Drengirnir aftur á móti séu líklegri til þess að fara í áfengis- og fíkniefnaneyslu, leiðist út í afbrot og sýni meiri reiði og árásargirni. Lesa má viðtalið við Sigrúni í heild sinni á vefsíðu Akureyri vikublaðs, en málstofan fer fram á morgun í Háskólanum á Akureyri á milli klukkan 12:10 og 12:55. Hún er öllum opin og í stofu M101. Þá verður málstofan einnig send út í beinni útsendingu í vefvarpi háskólans.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Sjá meira