Brynjar Níelsson: "Pólitík stýrir löggjöf um vændi“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 28. nóvember 2013 20:00
Einstaklingur sem er dæmdur fyrir kaup á vændi á Íslandi fær á annað hundrað þúsund krónur í sekt. Dómar eru ekki birtir og dæmdir njóta nafnleyndar.Fréttastofa ræddi við nokkra lögmenn í dag sem þekkja vel til refsinga vegna kaupa á vændi. Í nær öllum málum þar sem einstaklingar hafa verið dæmdir fyrir kaup á vændi er um sekt að ræða. Þeir sem eru að brjóta af sér í fyrsta sinn fá um 100.000 krónur í sekt og hún getur orðið nærri 200.000 krónum brjóti einstaklingur ítrekað af sér. Dómar vegna vændiskaupa eru ekki birtir opinberlega og hinir dæmdu ekki nafngreindir. Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og þingmaður, segir að refsiramminn fyrir kaup á vændi sé þyngri hér á landi en í nágrannalöndum. „Refsiramminn er tvöfalt þyngri hér á landi en í Svíþjóð. Það eru sektir og allt að eitt ár í fangelsi hér á landi en sektir og allt að sex mánaða fangelsi í Svíþjóð,“ segir Brynjar. Hann telur að ekki sé verið að vernda þá einstaklinga sem brjóta af sér og kaupa vændi. „Það er auðvitað ekki verið að verna þá sérstaklega. Þetta eru viðkvæm málefni og það er ekki verið að hugsa sérstaklega um sakborning. Það er aðallega verið að hugsa um aðra sem þarna koma að.Pólitísk sjónarmið ráða för Lögum um vændi var breytt árið 2009 þar sem kaup á vændi var gert ólöglegt. Nú er hins vegar löglegt að stunda vændi. Eðlilegt er að spyrja sig hvort að þessi löggjöf sé rökrétt? „Það er verið að setja ákveðna pólitík í refsilög sem er voða erfitt að framfylgja. Það er verið að kippa grunnreglum hegningarlaganna um hluteild úr sambandi í þessum eina málaflokki því auðvitað er ekki hægt að fremja þetta brot nema að seljandinn komi að því.“
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira