Ráðherra getur ráðið sér fimm aðstoðarmenn Jón Júlíus Karlsson skrifar 13. nóvember 2013 14:30
Ráðherra getur ráðið sér að hámarki fimm aðstoðarmenn samkvæmt lögum um stjórnarráð Íslands sem tóku gildi árið 2011. Fjallað var um fjölda aðstoðarmanna ráðherra Framsóknarflokksins í Fréttablaðinu í dag. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur segir eðlilegt að ráðherrar séu með fleiri aðstoðarmenn í kjölfar sameiningar ráðuneyta. „Ráðuneytin eru orðin stór með mörgum málaflokkum og glíma við flóknari verkefni eftir hrun. Það er ekki óeðlilegt að við slík skilyrði þurfi ráðherrar fleiri aðstoðarmenn til að sinna starfi sínu,“ segir Sigurbjörg. Fjórir ráðherrar Framsóknarflokksins eru með ellefu aðstoðarmenn. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er með fjóra aðstoðarmenn og Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er með þrjá aðstoðarmenn. Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru með sjö aðstoðarmenn. Sigurbjörg segir fjölda aðstoðarmanna efla pólitíska forystu ráðherra. Ráðningar aðstoðarmanna séu þó aðeins tímabundnar og af pólitískum toga. Aðstoðarmennirnir víki því um leið og ráðherrann fari úr embætti.Sigurbjörg SigurgeirsdóttirÞingmenn eiga ekki að starfa sem aðstoðarmenn Sigurbjörg hefur efasemdir um að rétt sé að ráða þingmenn til aðstoðar ráðherra. Tilkynnt var um ráðningu Ásmundar Einars Daðasonar sem aðstoðarmanns forsætisráðherra í gær. „Ég hef áhyggjur af því að þingmenn ráði sig sem aðstoðarmenn hjá framkvæmdarvaldinu. Það er nýmæli. Þingmenn ættu frekar að sinna starfi sínu með fullum krafti og einblína á rækta samband sitt við kjósendur. Það er þeirra starf. Jafnframt er hlutverk þingmanna að hafa veita framkvæmdavaldinu aðhald. Það getur reynst erfitt ef menn eru báðum megin við borðið,“ segir Sigurbjörg.Í lögum um stjórnarráð Íslands er fjallað um fjölda aðstoðarmanna. Ný lög tóku gildi 2011:22. gr. Ráðherrum er heimilt að ráða til starfa í ráðuneyti sínu aðstoðarmann eða aðstoðarmenn. Aðstoðarmenn sem eru ráðnir til starfa í Stjórnarráði Íslands skulu á hverjum tíma ekki vera fleiri en nemur tveimur fyrir hvern ráðherra en heimilt er samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar að ráða þrjá til viðbótar ef þörf krefur. Ákvæði um auglýsingaskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eiga ekki við um ráðningu aðstoðarmanna. Aðstoðarmaður ráðherra gegnir störfum fyrir ráðherra svo lengi sem ráðherra ákveður, þó ekki lengur en ráðherra sjálfur. Aðstoðarmenn Framsóknarflokks:Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: Ásmundur Einar Daðason, Benedikt Árnason, Jóhannes Þ. Skúlason og Sigurður Már JónssonEygló Harðardóttir: Matthías Imsland og Siv FriðleifsdóttirSigurður Ingi Jóhannsson: Benedikt Sigurðsson, Helga Sigurrós Valgeirsdóttir og Ingveldur SæmundsdóttirGunnar Bragi Sveinsson: Margrét Gísladóttir og Sunnar Gunnars Marteinsdóttir
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ Sjá meira