Innlent

Óvenju mörg umferðaróhöpp á Suðurnesjum

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Lögreglan hefur haft í nægu að snúast vegna umferðaróhappa.
Lögreglan hefur haft í nægu að snúast vegna umferðaróhappa. Mynd/Stefán
Óvenju mikið hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum.

Bifreiðareigandi sem sat að snæðingi heima hjá sér heyrði allt í einu ógnarhávaða fyrir utan hús sitt. Þegar hann gekk út til að athuga hvað væri á seyði lá vinnubifreið hans á hvolfi fyrir utan útidyrnar. Annarri bifreið hafði verið ekið á hann með þeim afleiðingum að hann valt. Sú bifreið endaði einnig á hvolfi ofan á grindverki. Ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Þá varð þriggja bíla árekstur þegar bifreið var ekið aftan á aðra, sem við það hentist á bílinn fyrir framan. Engin slys urðu á fólki en bílarnir skemmdust allir.

Fjórir ökumenn lentu í útafakstri. Þrír þeirra voru í mikilli hálku á Reykjanesbraut og hjá þeim fjórða fauk vélarhlíf bifreiðarinnar skyndilega upp með ofangreindum afleiðingum.

Loks urðu tveir minni háttar árekstrar, þar sem skemmdir urðu á bifreiðum en fólk sakaði ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×