Leið yfir Björn við qi gong æfingar Jón Júlíus Karlsson skrifar 16. nóvember 2013 22:34 Björn Bjarnason. Mynd/GVA
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var fluttur með skyndi á Landspítalann í gær. Björn var við qi gong æfingar í gærmorgun þegar það leið yfir ráðherrann fyrrverandi. Hann greinir sjálfur frá þessu á heimasíðu sinni. „Félagar mínir vöktu mig til meðvitundar en öruggar hendur þeirra sem komu í bílnum með þekkingu sína og reynslu sköpuðu mér og öllum öðrum vissu um að allt færi á hinn besta veg. Á Landspítalanum komst ég strax í hendur lækna og hjúkrunarfræðinga, var drifinn i hjartaþræðingu, sem sýndi heilbrigðar kransæðar. Síðan tóku við rannsóknir fram eftir degi og ákveðið var að fylgjast með mér og lagðist ég til svefns á hjartadeildinni,“ skrifar Björn. Hann vaknaði í morgun á Landspítalanum en var útskrifaður um hádegisbil eftir frekari rannsóknir. „Eins og jafnan áður þegar ég hef notið þjónustu þess frábæra fólks sem starfar á spítalanum fer ég þaðan stoltur yfir að þjóðin eigi slíkt sjúkrahús og öruggur um að ég hafi verið í hinum bestu höndum.“ Þetta er í þriðja sinn sem Björn þarf að leita séð aðstoðar á Landspítalanum. Fyrir um 20 árum fékk hann blóðeitrun í fótinn á prestastefnu á Hólum í Hjaltadal. Björn lá þá í viku á Landspítalanum. Björn þurfti einnig að leita sér aðstoðar á Landspítalanum árið 2007 þegar lunga féll saman.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira