Lífið

Kanye West hélt ræðu í Harvard

Kanye West
Kanye West AFP/NordicPhotos
Kanye West hélt ræðu í dag í Harvard Graduate School of Design í Boston, þar sem hann er staddur á tónleikaferðalagi.

Ræðan var stutt og laggóð og Kanye bauð meðal annars öllum nemendum miða á tónleika sem hann heldur þar í borg í kvöld.

Í lok ræðunnar verður Kanye örlítið vandræðalegur, sem er ekki algengt þegar um stjórstjörnuna er að ræða, þegar hann talar um sviðið á tónleikunum í kvöld.

„Ég er dálítið óöruggur vegna þess að ég er að sýna sviðið mitt arkítektum og það eru gallar í sviðsmyndinni,“ segir Kanye meðal annars.

Myndband af ræðunni má sjá hér að neðan.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.