Þóra Tómasdóttir ekki brotleg við siðareglur BÍ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 4. nóvember 2013 22:34 „
Mér fannst þetta fyrirsjáanleg niðurstaða og það er gott að vita til þess að maður hafi stuðning siðanefndarinnar í svona mikilvægu og að mörgu leyti flókna máli,“ segir Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs í samtali við Vísi. Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað í máli Egils Einarssonar og Guðríðar Jónsdóttur gegn Þóru vegna viðtals í blaðinu við Guðnýju Rós Vilhjálmsdóttur, sem kærði Egil og Guðríði fyrir nauðgun. Töldu Egill og Guðríður að ákveðin atriði í viðtalinu vörðuðu ákvæði siðareglna um vönduð vinnubrögð sem og að blaðamenn skulu í umfjöllun um dóms- og refsimál virða þá meginreglu laga að hver maður skuli talinn saklaus uns sekt hans sé sönnuð. Tilgreindu þau 16 atriði er þau töldu rangfærslur í viðtalinu. Þá gerðu þau einnig alvarlegar athugasemdir við fréttatilkynningu er Þóra sendi frá sér í kjölfar yfirlýsingar Guðríðar vegna viðtalsins. Siðanefndin sagði í niðurstöðu sinni að hún geri enga athugasemdi við það fréttamat Nýs lífs að birta viðtal við Guðnýju Rós þar sem hún lýsir sinni upplifun af máli sem allmjög hafi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að rangt hafi verið haft eftir henni í viðtalinu eða eftirmála. Telur siðanefndin að ákveðin atriði viðtalsins hefðu getað verið vandaðri, einkum lýsingar á áverkum Guðnýjar Rósar sem og yfirlýsingar Þóru um að hún hafi gefið Agli tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri þegar hún í reynd virtist hafa átt við að hún myndi gefa honum tækifæri til þess í næsta tölublaði. Nefndin kemst þó að þeirri niðurstöðu að hvergi hvíli skylda á Nýju lífi til að gefa Agli og Guðríði andmælarétt og að Nýtt líf hafi kynnt ítarlega þau sjónarmið um nauðgunarkæruna og eftirmála hennar sem Egill hafi birt í fjölmiðlum áður en tölublaðið kom út. Á það verði að líta að mörg atriði málsins sem til umfjöllunar er í blaðinu voru löngu kunn úr fyrri um fjöllun fjölmiðla, nema helst lýsingar Guðnýjar Rósar á sinni upplifun og afstöðu. Sú skýring Þóru að hún hafi viljað leyfa Guðnýju Rós að lýsa sinni upplifun er því alls ekki úr lausu lofti gripin segir í niðurstöðu siðanefndarinnar. Þóra teljist þannig ekki hafa gerst brotleg við siðarreglur Blaðamannafélags Íslands.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira