Trú á olíufund gæti stórbætt lánstraust Íslands Svavar Hávarðsson skrifar 7. nóvember 2013 14:28 Sigmundur flutti erindi á atvinnumálaráðstefnu Austurbrúar á Hallormsstað á miðvikudag. Mynd/Auðdís Tinna
Aðeins möguleikinn á olíufundi á Drekasvæðinu felur í sér mikil sóknarfæri fyrir Austurland, og reyndar landið allt, er mat Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra. Að sitja undirbúningsvinnu af stað vegna hugsanlegs olíufundar leiðir til jákvæðrar keðjuverkunar og gæti jafnvel bætt lánstraust Íslands. „Ég hef mikla trú á framtíð Íslands og hún byggist ekki hvað síst á þessum risastóru tækifærum sem við erum að ræða hér í dag,“ sagði Sigmundur á atvinnumálaráðstefnu Austurbrúar á Hallormsstað í gær, en hugsanlegt olíuævintýri á Drekasvæðinu og norðurslóðamál voru þar í forgrunni á öðrum degi ráðstefnunnar. Hann sagði reyndar að „norðurslóðamál væru ofarlega, jafnvel efst á lista, í forgangsröðun ríkisstjórnarinnar – sérstaklega í utanríkismálum. Á hverjum einasta fundi sem ég hef átt með fulltrúum erlendra ríkja hefur þetta verið eitt aðal málið – og ekki endilega að mínu frumkvæði.“ Sigmundur sagði að útlendingar hafi orðið fyrri til að sjá um hversu stórt tækifæri er um að ræða og því megi Íslendingar engan tíma missa við að hefja undirbúning. Ekki síst í ljósi þess að ráðamenn annarra þjóða, ekki síst Kínverja, séu afar áhugasamir um norðurslóðir, og hlutverk Íslands í því samhengi. „Við verðum að nýta þessi tækifæri á okkar forsendum en í samvinnu við önnur lönd og jafnvel erlend fyrirtæki sem hafa þekkingu sem nýtist okkur í uppbyggingarstarfi.“ En það er samvinnan innanlands sem Sigmundur lagði ekki síst áherslu á, og vitnaði til þess að starfsemin yrði að vænta mest á Norður- og Austurlandi. Hann sagði að samkeppni, í stað samvinnu, gæti þýtt að tækifærin færu annað. „Það er nóg til skiptanna. Ef að þetta fer af stað af alvöru. Raunar meira en nóg. Það verður kannski frekar vandamálið að umsvifin verði það mikil að erfitt verði að sinna því öllu.“ Sigmundur sagði reyndar að trúin ein dugi til að mikilla áhrifa gæti. Undirbúningsvinna og rannsóknir hafi áhrif á fjárfestingu og uppbyggingu og jafnvel fjárhag ríkisins. „Þau vaxtakjör sem bjóðast á þessar skuldir sem við erum að reyna að greiða niður, þau ráðast af framtíðarhorfum í íslensku atvinnulífi. Og það að 320 þúsund manna þjóð væri komin með sterk rök fyrir því að verulegar olíu og gaslindir væri að finna í lögsögunni myndi væntanlega auka lánstraust Íslands til mikilla muna og hefði þannig strax mikil bein fjárhagsleg áhrif. Bara það að menn hafi trúna og sitji vinnuna af stað getur leitt til jákvæðrar keðjuverkunar.“ Sigmundur sagði í erindi sínu að það væri ríkisvaldsins að ýta keðjuverkuninni af stað, en á seinni stigum tækju aðrir við og verkefnið yrði í framhaldinu sjálfbært. „Það er mikilvægt að nýta þetta tækifæri jafnvel þó að svo færi að engin olía fyndist í vinnanlegu magni. Það er gríðarleg sóknarfæri í því falin að byggja upp þekkingu, reynslu og getu á þessu sviði. Færeyingar hafa um skeið leitað olíu í sinni lögsögu, en hafa ekki fundið lindina ennþá. En þó að olían sé ófundin þá hefur þessi starfsemi gjörsamlega skipt sköpum fyrir efnahag Færeyja – og ráðið úrslitum um að þeir eru ekki í kreppu. Þeir eru farnir að þjónusta olíuleit og vinnslu í Noregi, eftir þennan stutta uppbyggingartíma þekkingar til þess“, sagði forsætisráðherra og bætti við að þó að Drekinn reyndist þurr þá eru olíulindir í hafinu í kringum Ísland. Nefndi hann í samhengi að Grænlendingar og Færeyingar vildu vinna með Íslendingum umfram aðrar þjóðir. Sagði hann að á fundum með grænlenskum stjórnvöldum hafi komið fram vilji þeirra til að auka samstarf við Íslendinga „til mikilla muna“ og fá Íslendinga til að ráðast í fjárfestingar og veita þjónustu í uppbyggingu Grænlands – í krafti þeirra gríðarlegu tækifæra sem þar eru.
Tengdar fréttir Túrbó-Þórður opnar á íslenskt olíuævintýri Nýr olíumálaráðherra Noregs gefur sterklega til kynna í blaðaviðtali í dag að norska ríkisstjórnin ætli að auka þátttöku sína í olíuleit á Drekasvæðinu. 5. nóvember 2013 18:30 Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira
Túrbó-Þórður opnar á íslenskt olíuævintýri Nýr olíumálaráðherra Noregs gefur sterklega til kynna í blaðaviðtali í dag að norska ríkisstjórnin ætli að auka þátttöku sína í olíuleit á Drekasvæðinu. 5. nóvember 2013 18:30