Ef þú átt ekki jólapeysu - prjónaðu þá eina og láttu gott af þér leiða Ellý Ármanns skrifar 30. október 2013 15:45
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Jólalandi Blómavals í dag þegar áheitavefurinn Jolapeysan.is - Barnaheill - Save the Children á Íslandi var formlega opnaður. Aðstandendur átaksins komu saman klæddir í þetta svona líka skemmtilegar jólapeysur.Jólapeysan.is virkar líkt og hlaupastyrkur. Þátttakendur skrá sig þar og keppast um að fá sem hæst áheit út á jólapeysuna sína. Átakinu lýkur formlega föstudaginn 13. desember. Ragnheiður Eiríksdóttir prjónakona með meiru og stofnandi Knitting Iceland hannaði Jólapeysuna 2013. Jón Gnarr klæðist peysunni á auglýsingum átaksins. Uppskrift peysunnar má kaupa til stuðnings átakinu í verslunum Hagkaupa sem og í helstu lopasöluverslunum landsins.Umtalaðasti maður dagsins Jón Gnarr hvetur fólk til að prjóna jólapeysur.Jón Gnarr borgarstjóri og Anna Svava Knútsdóttir leikkona leggja átakinu lið. Þannig hvetur Jón til dæmis fólk til að prjóna sínar eigin peysur en Anna Svava hvetur fólk til dáða með veitingar.Keppt í nokkrum peysuflokkum Á Facebook og Instagram verður keppt í nokkrum flokkum um bestu peysuna. Þannig verða veitt verðlaun fyrir bestu nördapeysuna, glamúrpeysuna, frumlegustu peysuna ljótustu peysuna og auðvitað fallegustu jólapeysuna 2013.Fyrirmyndin er bresk Á Jólapeysan.is eru ýmsar hugmyndir og uppskriftir af því hvernig útbúa má jólapeysur og halda skemmtilega jólapeysugleði en þar er einnig að finna prjónauppskriftir af jólapeysum ásamt ýmsu öðru efni sem auðveldar skipulagningu og framkvæmd. „Það er gaman að geta slegið tvær flugur í einu höggi og geta boðið upp á skemmtun um leið og maður óskar eftir stuðningi við verkefni Barnaheilla,” segir Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri samtakanna. Fyrirmyndin að átakinu er sótt til Save the Children í Bretlandi, sem hóf sams konar fjáröflunarátak á síðasta ári sem var afar vel tekið af almenningi; „Þar er jólapeysan auðvitað hluti af menningunni en okkur fannst vera kominn tími til að brydda upp á nýjungum hér á Íslandi og þess vegna tilvalið að lífga upp á tilveruna með jólapeysum.”Notaðu hugmyndaflugið „Við hvetjum fólk til að nýta hugmyndaflugið og skapa frumlegar og skemmtilegar jólapeysur en þetta er auðvitað líka tilvalið tækifæri til að skora á aðra og fá þá til að gera einhverja hluti ef ákveðin upphæð næst í áheitum. Það verður gaman að sjá hvað fólki dettur í hug," segir Erna að lokum.Anna Svava er dásamleg og peysan sem hún klæðist líka.Jolapeysan.is.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira