Landsvirkjun og Hagfræðistofnun í samstarf 24. október 2013 16:44 Gunnar Haraldsson og Hörður Arnarson handsala samninginn. Mynd/Landsvirkjun
Landsvirkjun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman í þeim tilgangi að efla rannsóknir sem snúa að viðskipta- og hagfræðilegum þáttum orkuvinnslu. Markmiðið er að efla fræðilegar rannsóknir á þessum þáttum orkuvinnslunnar og auka þannig þekkingu og almennan skilning á áhrifum hennar á efnahagslífið. „Með samstarfinu viljum við leggja okkar af mörkum til að stuðla að uppbyggingu þekkingar og faglegri umræðu um orkumál og orkumarkaði,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. „Við fögnum þessu samstarfi sem gerir okkur kleift að efla rannsóknir og byggja upp og miðla þekkingu á þessu mikilvæga sviði sem snertir þjóðarhag,“ Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar. Í samræmi við samstarfssamning sem undirritaður var í dag mun Landsvirkjun styrkja rannsóknarstarf á vegum Hagfræðistofnunar um 8 milljónir króna á ári í þrjú ár eða í heild um 24 milljónir á samningstímanum. Hagfræðistofnun leggur til eitt stöðugildi sérfræðings í orkuhagfræði sem mun einbeita sér að rannsóknum á sviðinu og að þeim verkefnum sem ákvörðuð eru innan samstarfsins. Markmið Landsvirkjunar er að stuðla að faglegri umræðu um orkumál auk þess að skapa virði fyrir atvinnulíf og samfélag með því að deila þekkingu og stuðla að nýsköpun. Samstarfssamningur sem þessi styður við gildandi stefnu Landsvirkjunar um samfélagslega ábyrgð sem felst í að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins.
Mest lesið Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Viðskipti innlent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Fleiri fréttir Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Sjá meira