Eini kvendómarinn skilar enn og aftur séráliti í kynferðisbrotamáli Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 24. október 2013 17:31 Ingibjörg Benediktsdóttir, hæstaréttardómari.
Ingibjörg Benediktsdóttir, hæstaréttardómari, skilaði séráliti í sýknudómi Hæstaréttar yfir Ómari Traustasyni í dag. Í sérálitinu taldi Ingibjörg að framburður fórnarlambsins hefði verið skýr og greinargóður, enginn misbrestur á honum og héraðsdómur hefði metið hann trúverðugan. Stoð hafi fengist fyrir framburði drengsins í vitnisburði prófessors og sálfræðings drengsins fyrir dómi og jafnframt vitnisburði hans og bréfi fyrir barnaverndarnefnd Reykjavíkur þar sem hann skýrði frá því að hann hefði verið misnotaður kynferðislega af Ómari. Ingibjörg segir ennfremur í sérákvæði sínu að engin ástæða sé til að draga mat héraðsdóms á trúverðugleika drengsins í efa. Þá skuli líta til þess að brotaþoli hafi aðeins verið 14 til 15 ára þegar á honum var brotið og því eðlilegt að hann legði ekki fram kæri fyrr en hann hafði aldur og þroska til þess. Ekki skuli meta honum það í óhag að hafa ekki lagt fram kæru á hendur ákærða fyrr en raun varð á. Ingibjörg telur að með vísan til þess sem fram kemur í sérákvæðinu og forsendna héraðsdóms skuli staðfesta niðurstöðu um sakfellingur Ómars. Ingibjörg Benediktsdóttir hefur tvisvar áður á þessu ári skilað ein sérákvæði í nauðgunarmálum. Annars vegar í máli þar sem fjórir hæstaréttardómara sýknuðu Andreu Unnarsdóttur, Jón Ólafsson, Elías Valdimar Jónsson af ákæru um kynferðisbrot þar sem fingrum var stungið upp í endaþarm og leggöng brotaþola sem hluti af grófri líkamsárás sem brotaþoli var beittur en sakfelldu þau þess í stað fyrir meiriháttar líkamsárás. Þar taldi Ingibjörg að sakfella ætti fyrir kynferðisbrot með þeim rökum að hugtakið „önnur kynferðismök“ væri skýrt í lögskýringargögnum og undir það teldist meðal annars falla sú háttsemi að setja fingur eða hluti í leggöng eða endaþarm. Þá skilaði Ingibjörg hins vegar sérákvæði í máli Stefáns Loga Sívarssonar og Þorsteins Birgissonar, þar sem héraðsdómur hafði dæmt þá í 5 ára og 4,5 árs fangelsi fyrir að hafa nauðgan tæplega 19 ára stúlku. Í sérákvæði hennar í því máli taldi hún það hafið yfir allan vafa að mennirnir tveir hafi gerst sekir um það brot sem þeir voru ákærðir fyrir og því beri að staðfesta niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu þeirra. Fjórir dómarar við Hæstarétt töldu hins vegar að í skýrslum stúlkunnar hjá lögreglu og fyrir dómi hefði gætt verulegs misræmis um ýmis mikilvæg atriði og „að um önnur slík atriði hefði framburður hennar stangast á við sýnileg sönnunrgögn,“ eins og segir í dómi Hæstaréttar. Í öllum þessum þremur málum var Ingibjörg eina konan í hópi þeirra hæstaréttardómara sem dæmdu í málunum.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira