Tollverðirnir á batavegi Jón Júlíus Karlsson skrifar 29. október 2013 18:00
Líðan tollvarðanna, sem fluttir voru á Landspítalann í Fossvogi í dag vegna gruns um eitrun af völdum amfetamínbasa, er stöðug og eru þeir á batavegi að sögn hjúkrunarfræðings á Landspítalanum. Tollverðirnir gengust undir ítarlega hreinsun við komuna á Landspítalann til að fyrirbyggja að óæskileg efni fylgdu með þeim inn á spítalann. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom fyrir sérstökum eiturefnagámi við Landspítlann í Fossvogi og var hann notaður til að hreinsa sjúkraflutningamenn sem fylgdu tollvörðunum til Reykjavíkur. Eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag báðu tollverðir erlendan flugfarþega um að fá að rannsaka innihald flösku sem sagt var innihalda rauðvín. Farþeginn brást ókvæða við og braut flöskuna. Grunur leikur á að um amfetamínbasa hafi verið að ræða. Fimm manns, fjórir tollverðir og rannsóknarlögreglumaður, fóru á bráðadeild Landspítala í Fossvogi með eitrunareinkenni, uppköst, höfuðverk, svima og verki. Líðan þeirra er eftir atvikum og munu þeir gangast undir frekari rannsóknir. Vonir standa til að tollverðirnir verði jafnvel útskrifaðir síðar í kvöld. Maðurinn sem braut flöskuna var handtekinn og er nú í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum vegna rannsóknar málsins.Frá slökkvistöðinni í Skógarhlíð.Mynd/Pjetur
Tengdar fréttir Grunur um eiturefnamengun á Keflavíkurflugvelli: Fimm tollverðir á bráðadeild Erlendur flugfarþegi var handtekinn eftir að hann braut flösku sem tollverðir vildu rannsaka. 29. október 2013 16:15 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira
Grunur um eiturefnamengun á Keflavíkurflugvelli: Fimm tollverðir á bráðadeild Erlendur flugfarþegi var handtekinn eftir að hann braut flösku sem tollverðir vildu rannsaka. 29. október 2013 16:15