Lestu þetta ef þú vilt fallegri húð og meiri æskuljóma Lukka Pálsdóttir skrifar 15. október 2013 11:00 Lukka Pálsdóttir eigandi HaPP.
Þú finnur muninn þegar þú ferð úr gömlu DSL tengingunni yfir í ljósleiðara tengingu. Allt verður hraðvirkara og skýrara. Við viljum hafa samskipti skýr og öflug. Þegar við sendum skýr skilaboð eru meiri líkur á að ná þeim árangri sem við viljum. Óskýr skilaboð skila stundum allt annarri niðurstöðu en við ætluðum. En vissirðu að þú getur uppfært samskipti taugafrumanna í háhraða ljósleiðara tengingu með því að passa að gefa þeim nægjanlegt magn af omega 3 fitusýrum? Omega 3 fitusýrur eru mikilvægar í frumuhimnum líkamans og stuðla að skýrari og betri samskiptum á milli þeirra. Nægjanlegt magn omega 3 og bazinga. Skilaboðin skjótast á milli með leifturhraða frá frumu til frumu á skýran og skilvirkan hátt. Ef þú borðar reglulega fisk eða grænmeti úr hafinu s.s. þörunga og þang, færðu ríkulegan skammt af omega 3.Er dýrið alið á grasi eða ekki? Þú getur líka fengið omega 3 úr kjöti en þá þarftu að spyrja steikina hvort hún hafi ekki örugglega borðað grænt gras. Ef dýrið sem þú leggur þér til munns er alið á korni í stað grass þá raskast hlutföllin mikið og það gefur þér omega 6 í miklu stærri skammti en omega 3. Því inniheldur kjöt og aðrar dýraafurðir svo sem egg og beikon ekki nálægt því sömu næringarefni og þessar afurðir gerðu áður.Hjálpa til við að þynna blóð Omega 3 fitusýrur gera líkama og sál margvíslegt gagn því þær hjálpa til við að þynna blóð, stjórna eða hamla frumuvexti og vinna gegn einkennum þunglyndis. Eitt af mikilvægum hlutverkum þeirra er að draga úr bólgum með því að keppa um sæti á frumuhimnunni við hina bólgumyndandi omega 6 fitusýru.Stuðla að bættum samskiptum Þannig geta omega 3 fitusýrur stuðlað að bættum samskiptum um leið og þær stuðla að betri heilsu og veita vörn gegn hjarta- og æðasjúkdómum og fjölmörgum öðrum langvinnum sjúkdómum. Omega 3 færir þér líka fallegri húð og meiri æskuljóma og líklega er það sú staðreynd sem fær þig til að passa betur upp á að fá nóg af henni. Fæðutegundir sem eru ríkar af omega 3 eru til dæmis: - Fræ s.s. hörfræ og chia fræ - Fiskur s.s. lax, silungur, sardínur og túnfiskur - Valhnetur - Spírur - Dökkgrænt grænmeti - Olíur s.s. lýsi og hörfræolía Áfram omega 3.
Tengdar fréttir Borðum MAT - ekki pillur og duft Forðastu viðbættan sykur, hvítt hveiti og önnur einföld unnin kolvetni. 8. október 2013 15:45 Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira
Borðum MAT - ekki pillur og duft Forðastu viðbættan sykur, hvítt hveiti og önnur einföld unnin kolvetni. 8. október 2013 15:45