Innlent

Deilt um afsökunarbeiðni

Boði Logason skrifar
Hannes og Sigurbjörg starfa bæði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Hannes og Sigurbjörg starfa bæði við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Mynd/365
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, sagði í pistli á Pressunni í kvöld að Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor við stjórnmálafræðideild HÍ, og Robert Wade prófessor hafi beðist afsökunar á orðum sem þau höfðu eftir honum í nokkrum erlendum tímaritum. Sigurbjörg gangrýnir hinsvegar Hannes fyrir að fara með deilurnar í fjölmiðla.

Upphaflega greinin birtist í Cambridge Journal of Economics í janúar í fyrra, þar sem haft var eftir Hannesi innan gæsalappa að „Frjálshyggjutilraun Davíðs Oddssonar er saga um mesta árangur í heimi.“ 

Sigurbjörg baðst afsökunar á þessum mistökum og mun afsökunarbeiðnin birtast í tímaritinu í nóvember, ásamt athugasemdum Hannesar Hólmstein.

Í pistli sínum á Pressunni segir Hannes jafnframt að Sigurbjörg og Wade hafi „boðist til að leiðrétta villu sína í þeim blöðum og tímaritum, sem hafa birt hana.“ 

Sigurbjörg segir hinsvegar í samtali við fréttastofu í kvöld að það sé ekki rétt, í bréfi sínu hafi komið fram að þau séu tilbúin að birta samskonar athugasemdir, hafi Hannes fyrir því að skrifa til þeirra blaða og tímarita sem rætt er um.

Þá segist Sigurbjörg alltaf haldið því fram að þessar umræður eigi að fara fram á akademískum vettvangi, en ekki í fjölmiðlum, en Hannes var í viðtali við Kastljós í kvöld þar sem hann ræddi um málið. Þá hafi hún einnig fengið 10 blaðsíðna langan tölvupóst frá lögfræðingi Hannesar í byrjun ágúst, „sem hafi ekki verið neitt annað en hótunarbréf.“ 

„Þetta eru aðferðir sem eru notaðar til að þagga niður í fólki, aðferðir sem er ekki hægt að kenna við neitt annað en ofbeldi. Það er mín skoðun,“ segir hún.

„Ég ákvað það strax að þegar málinu yrði lokið, þá ætlaði ég ekki að þegja yfir þessu. Ég sé enga ástæðu til þess þegar þetta er komið á þennan vettvang. Ég er alls ekki ein um að verða fyrir hótunum, skrekk og tilburðum. Ég er ekki ein um það í Háskóla Íslands, það veit ég. Svona ofbeldi hefur þann tilgang að reyna að þagga niður í manni. En ég ætla ekki að hjálpa ofbeldinu að virka. Þá fyrst er maður að bregðast fólkinu sem maður vinnur fyrir, fólkinu í landinu - því það borgar launin okkar,“ segir hún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×