Gyrt niður um busa og þeir beittir ofbeldi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 2. september 2013 15:20 Löng hefð er fyrir busavígslum hér á landi. Þessi ljósmynd er frá busavígslu í FB árið 1987. mynd/ljósmyndasafn reykjavíkur
Skólastjóri Fjölbrautaskólans í Garðabæ hefur gefið út þá tilskipun að ekki verði fleiri busavígslur í skólanum. „Á seinni árum hefur það síðan færst í vöxt að svokallaðar einkabusanir fari fram þegar busavígslu er lokið í FG. Þar taka eldri piltar, sumir hverjir ekki einu sinni nemendur í skólanum, nýnema FG og beita þá ótrúlega grófu ofbeldi.“ Þetta segir í fréttabréfi skólans sem kom út í dag. Þá kemur fram að skólastjórn hafi skipulagt ferðir að busavígslum loknum til að koma nemendum í öruggt skjól. „Okkur til mikillar undrunar og vonbrigða hefur talsverður hópur nýnema sleppt því að fara í þessar ferðir til þess eins að láta beita sig grófu ofbeldi og eru þannig orðnir viljugir þátttakendur.“ Þá er greint frá einkabusunum eftir busavígslu FG í ár þar sem komið hafi við sögu „fiskikör með úrgangi og úldnum kjúklingi“ og að nemendum hafi verið hent í sjóinn, gyrt hafi verið niður um þá og þeir látnir bera hundaólar. „Svona getur þetta ekki gengið. Viðbrögð skólans verða af tvennum toga. Í fyrsta lagi sendum við foreldrum þeirra drengja sem við vitum að tóku þátt bréf þar sem við förum fram á að á þessu verði tekið á heimilinu. Við vitum að við höfum ekki nema hluta nafnanna en teljum rétt að koma því sem við vitum á framfæri. Í öðru lagi verða ekki fleiri busavígslur í FG. Við munum auðvitað bjóða nýnema áfram velkomna og nýnemaferðir verða áfram á dagskrá. En við getum ekki lengur verið einhverjum ofbeldisseggjum skálkaskjól til að svala ofbeldisþörf sinni.“ Lesa má tilkynninguna í heild sinni á vef FG.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira