Innlent

Málning spúluð vegna misskilnings

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Stafsmenn áttu eingöngu að hreinsa ker utan um gróður en spúluðu málningu í leiðinni
Stafsmenn áttu eingöngu að hreinsa ker utan um gróður en spúluðu málningu í leiðinni Mynd/Wilhelm
"Þetta voru nýir starfsmenn sem áttu að hreinsa ker utan um gróður í morgun hjá Hofsvallagötunni, en vegna misskilnings og tungumálaörðuleika hreinsuðu þeir líka græna málningu og græna fána,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar.

Það var því ekki skipulögð framkvæmd að fjarlægja breytingar sem nýlega voru gerðar á Hofsvallagötu. Aftur á móti er verið að vinna að tillögum á breytingum sem lagðar verða fram á samráðsfundi í næstu viku. "Ég á von á því að það gangi hratt og vel að finna lausn á þessu máli,“ segir Bjarni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×