Utanríkisráðherra: Skelfilegt ef ekki verði hægt að refsa fyrir efnavopnaárás Heimir Már Pétursson skrifar 3. september 2013 17:46
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir skelfilegt til þess að hugsa að hægt sé að beita efnavopnum gegn saklausum borgurum í Sýrlandi án þess að þeim sem það geri sé refsað. Hann styðji hins vegar ekki árás á landið án haldbærra gagna. Utanríkisráðherra sat fund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Visby í Svíþjóð í dag þar sem málefni Sýrlands voru m.a. rædd. Hann segir eðlilegt að fjallað sé um brot af þessu tagi fyrir dómstólum og því hafi Ísland stutt að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vísi málefnum Sýrlands til Alþjóðasakamáladómstólsins. Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra Danmerkur sagði hins vegar í dag að Danir væru skuldbundnir til að styðja hernaðaraðgerðir í Sýrlandi enda útséð með að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna nái saman um aðgerðir. Gunnar Bragi bindur aftur á móti vonir við niðurstöður rannsókna fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi. „Og mögulega þær sannanir sem Bandaríkjamenn virðast búa yfir og Bretar, Frakkar og fleiri hafa sagt að séu fullnægjandi, geri það að verkum að öryggisráðið geti tekið afstöðu í málinu. Ég vil ekki útiloka það fyrr en það er fullreynt og ég held að það sé ekki fullreynt,“ segir Gunnar Bragi.Víða um heim eru menn með varan á varðandi stuðning við innrás á grundvelli sannana sem þessi ríkis segjast hafa, í ljósi aðdragandans að innrásinni í Írak á sínum tíma. - Eru íslensk stjórnvöld með varan á m.a. í ljósi fortíðarinnar í þessum efnum? „Það er alvegt ljóst að menn verða að leggja fyrir okkur trúverðug gögn því það vill enginn að það endurtaki sig að menn fari í einhverjar slíkar æfingar án haldbærra gagna. En það er hins vegar á sama tíma skelfilegt að hugsa til þess að ef hægt væri að leiða 99,9 prósent líkur að því hver gerði þetta, að ekki sé hægt að refsa þeim aðila með einhverjum hætti,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira