Var með lista yfir fleiri börn María Lilja Þrastardóttir skrifar 3. september 2013 19:56
Maður sem ákærður hefur verið fyrir að nema á brott unga stúlku og brjóta gegn henni kynferðislega, hafði í fórum sínum lista með nöfnum og heimilisföngum nokkurra barna. Aðalmeðferð í málinu fer fram á fimmtudaginn Rannsókn er lokið í máli mannsins sem nam barnunga stúlku á brott úr vesturbænum og braut gegn henni kynferðislega á afviknum stað og verður málið þingfest á fimmtudag. Þinghald málsins verður lokað til að vernda hagsmuni stúlkunnar sem um ræðir. Þann 14. maí síðastliðinn er maðurinn talinn hafa fært 10 ára stúlku inn í bíl sinn með valdi og ekið með hana á brott á afvikinn stað þar sem hann braut gegn henni kynferðislega. Eftir ódæðið ók hann stúlkunni aftur í vesturbæinn og skildi hana eftir. Hún gekk heim og greindi foreldrum sínum frá brotinu. Lögreglan hélt á heimili stúlkunnar um leið og tilkynningin barst og í framhaldi af því var farið með hana á sjúkrahús til aðhlynningar. Þá þegar hóf lögregla umfangsmikla leit af brotamanninum og ökutækinu. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar en stúlkan sjálf gat gefið greinargóða lýsingu á manninum, bílnum og ökuleiðinni. Rannsókn málsins var víðtæk og beindist meðal annars að lista sem maðurinn hafði í fórum sínum. Á listanum voru nöfn barna og heimilisföng ásamt öðrum upplýsingum um þau. Börnin voru ekki tengd manninum á neinn hátt. Málið vakti strax mikinn óhug og tengsl mannsins við sambærileg atvik voru könnuð. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu en þó ekki fyrir sambærileg mál. Við yfirheyrslu bar maðurinn við minnisleysi. Hann hafi verið afar illa sofinn og undir áhrifum vímuefna. Við útgáfu ákæru í málinu kom fram að maðurinn drægii það ekki í efa að hann hafi gerst brotlegur við stúlkuna þótt hann myndi ekki eftir því.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Sjá meira