Unnur Brá kjörin formaður Vestnorræna ráðsins 20. ágúst 2013 18:16 Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Vilhelm
Ársfundur Vestnorræna ráðsins kaus Unni Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins og formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, formann ráðsins á 29. ársfundi þess sem haldinn er í Narsarsuaq í Suður-Grænlandi dagana 19. til 20. ágúst. Unnur Brá Konráðsdóttir tekur við embættinu af Lars-Emil Johansen, forseta grænlenska Landsþingsins, sem heitir Inatsisartut eftir að Grænland hlaut sjálfstjórn. Unnur Brá sagði í ræðu sinni á fundinum að í formennskutíð sinni myndi hún leggja höfuðáherslu á að þrýsta á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að styrkja Norðurskautssamstarf landanna. Hún sagði jafnframt að hún myndi vinna að því að tryggja áheyrnaraðild Vestnorræna ráðsins að Norðurskautsráðinu, en samþykkt var á ársfundinum að sækja um þess slags aðild. Þá sagðist hún ætla að leggja áherslu á að löndin efldu samstarf sitt í heilbrigðismálum og þá sérstaklega það sem hefur í för með sér efnahagslegan ávinning fyrir löndin. Unnur Brá gerði að umtalsefni aðgerðir ESB í tengslum við makrílveiðar Íslands og Færeyja og síldveiðar Færeyja, sem og stuðning sjávarútvegsráðherra Noregs við þær. Hún sagðist mundu taka ályktun ársfundarins um málið upp með sendinefnd Evrópuþingsins, en í ályktuninni er ESB gagnrýnt harðlega fyrir hótanir sínar í garð Færeyja og Íslands og bent á að slíkt eigi ekki við í samskiptum siðaðra þjóða. Að auki benti Unnur Brá á að Vestur-Norðurlönd hafi fullan rétt á að stunda sjálfbærar veiðar á hvölum og selum. Auk Unnar Brár sitja Lars-Emil Johansen, forseti Landsþings Grænlands, og Bill Justinussen, þingmaður í Færeyjum, í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins. Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs. Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja. Löndin þrjú skipa sex fulltrúa hvert í Vestnorræna ráðið.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira