SDG ætlar að beita sér til að tryggja flugvöll í Vatnsmýri Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. ágúst 2013 21:12
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segist ætla að beita sér fyrir því að tryggja framtíð Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri. Þegar eru hafnar viðræður milli innanríkisráðuneytisins og borgarinnar vegna málsins. Rúmlega 34.000 hafa nú skrifað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem lagst er gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni. Á vefsíðunni lending.is sem er rekið af félaginu Hjartað í Vatnsmýri hafa rúmlega 34 þúsund manns skrifað undir áskorun til Reykjavíkurborgar og Alþingis um að halda Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni. Þetta er athyglisvert fyrir þær sakir að þessum fjölda undirskrifta hefur verið náð á aðeins fimm dögum því síðan opnaði á föstudag. Til samanburðar söfnuðust um 38 þúsund undirskriftir vegna Icesave III í febrúar árið 2011. Hér er þó ekki verið að safna undirskriftum gegn lagafrumvarpi eins og þá. Eins og sést á þessu myndskeiði (sjá myndskeið með frétt) sem tekið var upp á tíu mínútna kafla á sjötta tímanum í dag fjölgar undirskriftum stöðugt frá mínútu til mínutu. Í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að norður- og suður flugbrautir flugvallarins í Vatnsmýri víki fyrir byggð eftir árið 2016. Þetta hefur verið á döfinni í einhverri mynd allt frá árinu 2001 eftir íbúakosningu sem þá fór fram um framtíð flugvallarins. Niðurstaða þeirrar kosningar var ekki bindandi fyrir borgarstjórn, aðeins ráðgefandi.Viðræður hafnar milli ríkis og borgar Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa þó átt sér stað óformlegar viðræður milli innanríkisráðuneytisins og borgarráðs um að borgin fresti þessum áformum lengra inn í framtíðina eða tryggi veru flugvallarins áfram í Vatnsmýri. Aðalskipulag var samþykkt í borgarstjórn fyrr á þessu ári og er um þessar mundir í auglýsingu. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, gaf ekki kost á viðtali í dag vegna málsins. Viðræður ríkis og borgar eru snúnar. Skipulagsvaldið er hjá borginni, sjálfstæði sveitarfélaga er tryggt í stjórnarskránni og ríkið getur ekki gefið borginni nein fyrirmæli í þessum efnum. Bæði ríki og borg eiga landið undir flugvellinum svo framtíð flugvallarins er að einhverju marki háð sátt þessara aðila, en fyrr á þessu ári keypti Reykjavíkurborg 112 þúsund fermetra lands í Vatnsmýri af ríkissjóði.Skipulagsvaldið er hjá borginni, en hvað getur forsætisráðherra gert og öllu heldur mikilvægari spurning, hvað vill hann gera? „Það sem þarf til að tryggja að flugvöllurinn verði áfram á sínum stað. Þetta er það mikilvægt öryggisatriði í fyrsta lagi en líka spurning um að viðhalda nauðsynlegri tengingu á öllum sviðum milli landsbyggðarinnar og höfuðborgar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.Vill sjá flugvöllinn í óbreyttri mynd Sigmundur Davíð segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hafi leyft sér að fylgjast með viðræðum við borgaryfirvöld. „Ég treysti henni mjög vel til þess að fylgja því eftir. Ég myndi að sjálfsögðu helst vilja sjá flugvöllinn í þeirri mynd sem hann er. Þ.e.a.s þriggja flugbrauta völl. Það er mjög óheppileg á allan hátt þessi leið að reyna að þrengja stöðugt meira að flugvellinum og flytja hann nánast í pörtum úr Vatnsmýrinni, en fyrst og fremst gera flugvellinum ókleift að starfa þarna. Það er stefna sem að ríkið þarf að koma í veg fyrir að nái fram að ganga áfram,“ segir Sigmundur Davíð.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Ted Turner er látinn Erlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Sjá meira