Hættir sem bæjarstjóri Hornafjarðar Haraldur Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2013 12:31 Hjalti Þór Vignisson hefur setið sem bæjarstjóri Hornafjarðar í sjö ár.
Hjalti Þór Vignisson mun láta af störfum sem bæjarstjóri sveitarfélagsins Hornafjarðar þann 1. nóvember næstkomandi og hefja störf hjá Icelandic Pelagic ehf. Hjalti mun því ekki starfa sem bæjarstjóri út kjörtímabilið en hann hefur setið sem bæjarstjóri í sjö ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hjalti sendi frá sér og birtist á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar segir Hjalti að hann muni hefja störf hjá Icelandic Pelagic ehf. í byrjun nóvember, en fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á afurðum úr uppsjávarfiski.Yfirlýsing Hjalta Þórs Vignissonar, bæjarstjóra Hornafjarðar: Síðastliðin níu ár hef ég gegnt ábyrgðarstarfi hjá Sveitarfélaginu Hornafirði, þar af síðustu sjö ár sem bæjarstjóri. Sá tími hefur verið skemmtilegur og viðburðaríkur. Öll þessi ár hef ég starfað með góðu fólki, bæði kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélagsins. Eftir umhugsun síðustu vikur og mánuði komst ég að þeirri niðurstöðu að rétt væri að sækjast ekki eftir að gegna starfi bæjarstjóra að loknu yfirstandandi kjörtímabil. Það er mitt mat að ekki sé farsælt fyrir samfélagið að sami einstaklingur gegni starfi bæjarstjóra of lengi. Ætlunin var að starfa út kjörtímabilið en nýverið sá ég auglýsingu frá Iceland Pelagic ehf. um áhugavert starf. Í stuttu máli hefur félagið ráðið mig til starfa frá og með 1. nóvember nk. Þá læt ég af störfum sem bæjarstjóri Hornafjarðar. Nýja starfið er spennandi, hjá fyrirtæki sem hefur byggst jafnt og þétt upp á síðustu misserum. Þar gefast tækifæri til að auka við þekkingu mína og færni. Það skipti ekki síður máli að starfstöðin er á Höfn, þar sem fjölskyldunni hefur liðið vel og við viljum búa áfram. Efst í huga er þakklæti til allra sem hafa starfað með mér og stutt mig í starfinu. Íbúar hafa frá fyrstu tíð verið hvetjandi og sýnt vináttu fremur en nokkuð annað. Það hafa verið forréttindi að gegna starfi bæjarstjóra Hornafjarðar. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka íbúum, starfsfólki og kjörnum fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar samfylgdina í öll þessi góðu ár.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði